10.09.1917
Efri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1610 í B-deild Alþingistíðinda. (1544)

164. mál, tekjuskattur

Fjármálaráðherra (S. E):

Háttv. deild virðist yfirleitt taka illa á móti öllum þeim frv., er miða til þess að afla landssjóði tekna. En jeg hygg, að háttv. deild megi gæta allrar varúðar í því efni.

Jeg er ekki í neinum vafa um, að þessi tekjustofn, sem hjer er um að ræða, er einhver sá allra rjettlátasti, sem völ er á. Með því er lagður skattur á þá, er mestan gróða hafa haft á ófriðarárunum. Hygg jeg, að þessi skattur gæti gefið töluvert í aðra hönd. Háttv. þm. Ísaf. (M. T.) fann það frv. til foráttu, að 1918 yrði greiddur skattur af gróðanum 1916. Svo hefir ætíð verið samkvæmt tekjuskattslögunum frá 1877, að skatturinn er greiddur 2 árum síðar en menn hafa hlotið þær tekjur, sem skattskyldar eru, og sje jeg ekki ástæðu til, að því verði breytt. Jeg get ekki fallist á, að lög þessi nái ekki til tekna á árinu 1916. Þetta ár, 1916, er eitthvert langtekjumesta árið. Mönnum ber saman um það, að stórgróðamenn sjeu færastir um að greiða skatta til landssjóðs, og virðist því ekki ósanngjarnt, að þeir, er grætt hafa 1916, greiði landssjóði skatt af þeim tekjum. Og þess ber að gæta, að hingað til hefir skatturinn verið mjög lítill á þeim, sem færastir eru um að greiða hann.

Háttv. þm. Ísaf. (M. T) óskaði, að málið væri tekið út af dagskrá. Jeg leyfi mjer að benda á, að nú er mjög svo liðið á þingtímann og búist er við, að þinginu verði lokið á laugardaginn kemur. Ef gera á miklar breytingar á frv. og fresta umræðunni nú, þá býst jeg við, að það verði til þess, að frv. nái ekki að verða afgreitt á þessu þingi. Jeg vil því eindregið leggja á móti því, að umr. verði frestað, enda geta menn komið fram með brtt. sínar við 3. umr. (M. T.: Þá hafa menn þegar samþ. hinar einstöku greinar frv.) Brtt. má þá taka aftur nú og koma svo með þær við 3. umr. Enda hygg jeg, að frv. sje svo vel vaxið, að vel megi samþykkja það í þeirri mynd, sem það nú er í.

Jeg hefi bent á hjer í háttv. deild, að hagur landssjóðs er alls ekki góður. Lánstraust landsins hefir mjög verið notað. Tekjuhallinn í fjárlagafrv. 1918 — 1919 er alt að 1 miljón króna. Auk þess eru útgjöld í fjáraukalögunum, er nema um 300,000 kr. Á hinn bóginn er enginn vissa fyrir því, hvort tekjufrv. þau, er nú liggja fyrir þinginu, nái fram að ganga. Álít jeg því óhyggilegt að koma þessu eina frv. fyrir kattarnef, þar sem um langábyggilegasta tekjustofninn er að ræða.