29.08.1917
Neðri deild: 46. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1668 í B-deild Alþingistíðinda. (1588)

169. mál, aðflutningsbann á áfengi

Jörundur Brynjólfsson:

Við litum margir svo á snemma á þessu þingi, að nauðsynlegt væri að gera umbætur á bannlögunum, og við lítum enn svo á, að nauðsynin sje engu síður á því nú en þá var. Og mjer dylst það ekki, að frv. það, sem nú er til umræðu, feli í sjer margt til bóta. Því er það sjálfsagt fyrir alla þá, sem sömu skoðunar eru og jeg, að greiða atkvæði gegn hinni rökstuddu dagskrá hv. þm. Barð. (H. K.).