03.09.1917
Neðri deild: 50. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1685 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)

169. mál, aðflutningsbann á áfengi

Jörundur Brynjólfsson:

Háttv. frsm. (M. G.) vjek enn að því, er jeg sagði við 1. umr. þessa máls, þessu, að jeg teldi, að sumir lögreglustjórar hjer í landi væru ekki svo duglegir, sem æskilegt væri, til að gæta þess, að bannlögunum væri framfylgt. Hann spurði, við hverja væri átt, og jeg svaraði, að ekki mundi græðast mikið við það, þótt jeg skýrði frá því. En það get jeg sagt háttv. þm. (M. G.), að jeg átti alls eigi við hann. Þetta svar mitt get jeg látið nægja einnig nú, og endurtek það, að jeg átti alls eigi við sýslumann Skagfirðinga (M. G.); og jeg fæ ekki sjeð, að sá, sem saklaus er, græði neitt við það, þótt hinn seki sje nefndur á nafn.

Háttv. þm. (M. G.) vjek enn að orðinu ölvaður. Þó að merking orðsins sje í raun og veru sú, sem hann sagði, þá mun engum lögreglustjóra nje þjónum hans detta í hug að fara að taka mann fyrir það eitt, þótt þeir hefðu grun um, að hann kynni að hafa bragðað vín.

Það, sem háttv. frsm. (M. G.) sagði um Eimskipafjelagið, mun vera sprottið af ókunnugleika hans.

Það kom greinilega í ljós í vetur, að það var allmikill ágreiningur milli fjelagsmanna um það, hvort ætti að leyfa skipum Eimskipafjelagsins að hafa vín innanborðs eða ekki. Þetta er töluvert athugavert; því að ef þess verður ekki gætt betur en hingað til, um vínveitingar í skipum Eimskipafjelagsins á ferðum þeirra kringum landið, þá er hætt við, að það verði hið mesta deiluefni milli þeirra, sem vínið vilja hafa, og hinna.

Viðvíkjandi brjefi því, sem háttv. frsm. (M. G.) mintist á, frá stjórn Eimskipafjelagsins, þá er þess að gæta, að meiri hluti hennar mun vera heldur andvígur bannlögunum, og því er ekkert kynlegt, þó að þessi mótmæli frá fjelagsstjórninni komi fram. En formaðurinn, sem er fylgjandi bannstefnunni, hefir talið sjer skylt að beygja sig fyrir meiri hlutanum. Það er kunnugt, að hann vill ekki, að skip fjelagsins hafi vínveitingar um hönd.

Háttv. 2. þm. Rang. (E. J.) vjek nokkrum orðum að því, sem jeg sagði. Það er leitt, hvað háttv. þm. (E. J.) hættir við að misskilja orð manna, mín og annara; lítur út fyrir, að hann taki ekki ofvel eftir. Jeg sagði ekki, að háttv. allsherjarnefnd væri vön að binda sig við orðin tóm, en jeg sagði, að í þessu atriði mundi hún um of hafa bundið sig við venjulegu merkingu orðsins ölvaður, og því talið miklu meiri vandkvæði á að framfylgja ákvæði því, sem felst í brtt., en í raun og veru eru. Hitt efast jeg ekki um, að háttv. nefndarmenn, og þá auðvitað einkum háttv. 2. þm. Rang. (E. J.), sjeu mikilhæfir og mjer meiri.