05.09.1917
Neðri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1701 í B-deild Alþingistíðinda. (1605)

169. mál, aðflutningsbann á áfengi

Bjarni Jónsson:

Það mun vera alveg rjett, að það hafi staðið í lögunum frá upphafi, en það hefir þar staðið á móti mínum vilja, og því vil jeg ekki sitja mig úr færi að leiðrjetta það, þegar jeg má því við koma. Mjer þykir það nóg að taka embætti af þeim, sem eru í þjónustu ríkisins, þótt þeir missi ekki um leið alla möguleika til að hafa ofan af fyrir sjer og sínum. Um hina, sem ekki eru í þjónustu þess, er það að segja, að þar eiga sektarákvæðin að nægja. Jeg álít, að það sje ekki hæfilegt að taka læknisleyfi af öðrum en þeim, sem sýna af sjer einhverja afglöpun í læknisdómi sínum, en þetta er ekkert því líkt. Þetta er líkt eins og það, ef læknirinn sviki toll eða eitthvað þess háttar, og dytti víst engum í hug að taka fyrir það af honum »veniam practicandi«.