05.09.1917
Neðri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1718 í B-deild Alþingistíðinda. (1614)

169. mál, aðflutningsbann á áfengi

Magnús Pjetursson:

Jeg ætla að leyfa mjer að segja fáein orð, út af hugleiðingum hæstv. fjármálaráðherra (S. E.). Hann byrjaði með að segja það, að sjer hefði fundist, að hann hafði verið kunnugur öllum orðum mínum áður. Jeg get vel trúað því, því að jeg þykist vita, að hann hafi verið kominn að sömu niðurstöðu og jeg í hjarta sínu, og því kannast við það, sem jeg sagði, og vitað, að það var rjett. Þá þótti hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) jeg hafa verið fullsiðavandur við síðustu atkvæðagreiðslu þessa máls. Jeg get ekki skilið, að það þurfi að standa í neinu sambandi við skoðun manns á bannlögunum, hvort manni þykir skemtilegt eða ekki að sjá fulla menn í bannlandi. Mjer hefir ekki þótt skemtilegt að sjá fulla menn hjer á götunum dag eftir dag, þrátt fyrir það, að sá ágæti bannmaður og duglegi bæjarfógeti, sem nú er orðinn fjármálaráðherra, hefir verið hjer lögreglustjóri. Úr því að bannmenn vilja altaf vera að hræra í lögunum, þá er ekki nema rjett, að þeir fái einu sinni vilja sínum framgengt, og þess vegna greiddi jeg atkv. með báðum till. háttv. þm. Borgf. (P. O.). (S. E.: En svo á móti sjálfu málinu.) Já, vegna þess, að jeg vil helst engar breytingar á lögunum, en ef á annað borð á að breyta lögunum, þá vildi jeg hafa breytingarnar á þennan veg. Þetta býst jeg við að hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) geti skilið, því að það er rökrjett hugsað. Jeg man ekki til, að jeg mintist neitt á kostnaðarspursmálið við að rannsaka hirslur farþega, en gat þess víst, að þetta ákvæði væri skiljanlegt í sambandi við löggæslufrumvarpið, en hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) bygði alla sína röksemdafærslu á því, að engin heimild til rannsóknar væri til áður í lögunum; en, eins og jeg hefi áður sýnt fram á, þá er þó svo. Eftir greininni, sem hann las upp, verða lögin þó ekki skilin öðruvísi en þannig, að alt í skipinu liggi undir rannsókn. Hvað sem lögfræðingarnir deila um þetta, þá getur þó heilbrigð skynsemi ekki skilið þetta öðruvísi. Annars get jeg ekki sjeð, að hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) geti bent á önnur atriði en þetta eina, sem jeg vil rýmka um, en það kemur til af því, eins og áður hefir verið tekið fram, að jeg vil ekki siga lögreglunni á hirslur farþega sjerstaklega, fram yfir á aðra staði í skipinu. Það er ekki undarlegt, þótt hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) óttist tundurduflin, því að það er mikið um þau skrafað nú, en jeg býst nú ekki við, að mikil tundurdufl verði á vegi þessara laga af mínum völdum, því að »vel megum vjer nú bíða þess, að eldurinn vinni þeim«.

(S. E.: Eldurinn?) Já, jeg meina, að almenningsálitið muni brenna þau; jeg hjelt, að ráðherrann hefði ef til vill heyrt þetta máltæki úr Njálu áður.

Jeg vil leyfa mjer að spyrja háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), hvort hann óttist ekki það, ef brtt. hans verður samþ., að það hvetji menn til að láta sjá sig drukna. Það hefir oft verið skilið svo, þegar einhver neitunarákvæði hafa verið feld úr gildi, að þá sje mönnum þar með leyft eða þeir jafnvel hvattir til að gera það gagnstæða. Það verður varla hjá því komist, að það berist út, að búið hafi verið að setja þetta ákvæði inn í lögin, en síðar hafi þingið komist að þeirri niðurstöðu, að það væri ekki rjett að taka hart á því, þó að menn sæjust ölvaðir. Það mætti skilja þetta svo, að það væri ekki verið að hvetja menn til að láta sjá sig ölvaða, og jeg er því hissa á því, ef nokkur bannmaður greiðir þessari brtt. atkv.