10.09.1917
Efri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (1627)
169. mál, aðflutningsbann á áfengi
Halldór Steinsson:
Jeg hefi gert það að till. minni, að máli þessu verði vísað til allsherjarnefndar. Jeg sje enga ástæðu til að falla frá þeirri till., þar sem þetta er yfirgripsmikið mál og mikilsvert, en mörg smámál hafa ekki fengið að ganga fram nefndarlaust.