06.07.1917
Efri deild: 4. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1737 í B-deild Alþingistíðinda. (1636)
23. mál, Tunga í Skutulsfirði
Flm. (Magnús Torfason); Frv. þetta er flutt samkv. beiðni bæjarstjórnarinnar á Ísafirði og áskorun þingmálafundar. Ástæðurnar fyrir frv. eru teknar fram í greinargerð þeirri, er því fylgir, og þykir mjer ekki þörf á að ræða það frekara við þessa umr. Vildi einungis óska þess, að frv. mætti ganga til 2. umr. og að því verði vísað til landbúnaðarnefndar.