18.07.1917
Efri deild: 10. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1737 í B-deild Alþingistíðinda. (1638)
23. mál, Tunga í Skutulsfirði
Frsm. (Guðjón Guðlaugsson):
Nefndin var fyrst í vafa um, hvort rjett væri að selja jörðina. Þá kom atriði til athugunar, og það var þetta, hvort ætti að ganga fram hjá ábúanda jarðarinnar og hlutaðeigandi sveitarfjelagi, sem hvorttveggja hefir lagalegan rjett til kaupanna. En þegar þess var svo gætt, að í skjölum frá sýslunefnd sást, að þáverandi ábúandi hafði sótt um kaupin, en ekki fengið, af því að sýslunefndin áleit jörðina svo hentuga til kaups fyrir Ísafjarðarkaupstað, sakir nálægðar, þá fjell nefndin frá þessu atriði. Og nefndin var því sammála að ráða deildinni til að samþykkja frv. að þessu leyti.
Annar liður málsins var verð jarðarinnar. Vegna þess, að jörðin gefur ekki meira af sjer en sem samsvarar 2000 kr. höfuðstól í mesta lagi, þá virtist nefndinni 4000 kr. sæmilegt boð. En vitanlega gæti átt sjer stað, að vafi ljeki á, að verð jarðarinnar sje eigi nógu hátt, en nefndina brast kunnugleika til þess að rökstyðja, að verðið ætti að vera hærra. Og hún tæki því með þökkum, ef aðrir þingmenn gætu frætt hana um þetta atriði.
Vjer lögðum eindregið til, að skógurinn verði seldur. Presturinn, sem hafði hann, hafði aldrei neinar tekjur af skóginum, og því áleit nefndin, að hann væri betur kominn í höndum kaupstaðarins, sem mundi hlúa að honum og ef til vildi gera hann að skemtistað.
Niðurstaðan verður því sú, að nefndin rjeð hinni hv. deild til að samþykkja frv. óbreytt, að fyrirsögninni fráskilinni, sem nefndin óskaði að yrði þannig: »Frumvarp til laga um sölu á kirkjueigninni, 7 hndr. að fornu mati, úr Tungu í Skutilsfirði, ásamt skógarítaki þar.« Nefndinni þótti þessi fyrirsögn samsvara betur efni og innihaldi frv., þótti hin fyrirsögnin vera heldur stór í samanburði við innihaldið.