08.08.1917
Neðri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1740 í B-deild Alþingistíðinda. (1648)

23. mál, Tunga í Skutulsfirði

Frsm. (Hákon Kristófersson):

Jeg hefi ekki annað að segja en það, sem stendur í nefndarálitinu. Nefndin var á einu máli um það, að leggja með sölunni. Það mætti segja, að verðið ætti ef til vill að vera hærra, en nefndin hefir litið svo á, að þar sem þessi eign færist frá einni opinberri eign til annarar, þá sje það að eins aukaatriði, hvort verðið er ákveðið einu eða tveimur hundruðum meira eða minna; því leggur hún til, að frv. nái fram að ganga óbreytt.