08.08.1917
Neðri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1742 í B-deild Alþingistíðinda. (1653)

23. mál, Tunga í Skutulsfirði

Frsm. (Hákon Kristófersson):

Jeg verð að vísa til skjala þeirra, sem liggja frammi, snertandi söluna. Eins og jeg hefi þegar tekið fram brestur mig allan kunnugleika á jörð þessari. Um ítak það, sem hjer er um að ræða, er það að segja, að það er talið eign kirkju þar fyrir vestan, er jeg í svip man ekki hvað heitir, en um það má sjá í skjölum þeim, er jeg hefi áður bent á, sem og nefndaráliti því, er kom fram í háttv. Ed. Ítak þetta var metið á 200 kr.