14.09.1917
Neðri deild: 60. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 583 í B-deild Alþingistíðinda. (168)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Benedikt Sveinsson:
Jeg ætla ekki að þjá háttv. þingheim með neinum rökræðum um brtt. þær, er hjer liggja fyrir, en minnast að eins lítið eitt á tvö atriði í sambandi við samgöngur á sjó, sem nefnd eru í C-lið, 13. gr.
Samvinnunefnd samgöngumála athugaði, hvernig best mundi hagað strandferðunum á næsta fjárhagstímabili, þeim ferðum, sem »Sterling« er ætlað að annast. Nefndin samdi ferðaáætlun fyrir 1918 og 1919, og því uppkasti var útbýtt hjer í deildinni í dag, og vona jeg, að nefndinni hafi tekist þar að fara nærri óskum flestra, sem unt var, en þar sem hreppapólitíkin leikur lausum hala, er erfitt að gera öllum til hæfis. Það hefir slæðst nokkuð af prentvillum inn í áætlunina, sem þarf að laga, og verður gert, því að á morgun verður útbýtt hjer leiðrjettri endurprentun af þessari áætlun. Samvinnunefnd samgöngumála er skipuð 12 mönnum, sínum úr hverri áttinni, og hefir því vitanlega reynt að gera öllum til hæfis. Áætlunin hefir verið borin undir framkvæmdarstjóra Eimskipafjelagsins, og hann hefir talið hana framkvæmanlega og hagkvæma. Það er ekki tilætlun nefndarinnar, að stjórnin sje bundin við þessa áætlun út í ystu æsar, en hún á að vera stjórninni til leiðbeiningar. Ef stjórnin hefir rök fyrir því, að hagkvæmara sje að breyta eitthvað um, þá er henni það heimilt.
Því var skotið að mjer rjett í þessu, að villurnar í áætluninni væru sannanlegar ritvillur í handriti háttv. 2. þm. S.-M. (B. St.), sem skrifaði áætlunina, en ekki prentvillur, en það kemur í sama stað niður, því að á morgun verður útbýtt leiðrjettri endurprentun.
Svo framarlega sem styrjöldinni lýkur á næsta ári, er líklegt, að samgöngur verði í betra horfi 1919 og fleiri skip þá til flutninga. Nefndin býst því ekki við, að þessi áætlun þurfi að gilda nema 1918, því að hún gerir ráð fyrir breyttum háttum seinna árið. En þá koma tímar og þá koma ráð .
Hitt atriðið, sem jeg ætlaði að tala um, stendur líka í sambandi við samgöngur á sjó. Þegar þær eru slíkum erfiðleikum bundnar sem nú, er sjálfsagt, að stjórnin sýni alla tilhliðrunarsemi, til þess að gera þær greiðari, meðal annars með því að veita skipstjórum undanþágur, samkvæmt því sem heimilað er í lögum frá 1915, um atvinnu við siglingar. Mjer er kunnugt um það, að fyrir skömmu var íslenskur skipstjóri ráðinn á fiskiskip, sem keypt var frá Vesturheimi, og sigldi hann því um tíma milli hafna hjer innanlands til vöruflutninga. Síðan átti að senda skipið með farm til útlanda, en þá var skipstjóra tilkynt, að hann brysti rjettindi til þess að stýra skipinu í utanlandssiglingum, og honum synjað um undanþágu til þess, vegna þess, að hann hefði ekki hið meira skipstjórapróf. Skipstjórinn þóttist hjer beittur ósanngirni, sem von var. Skipið var um 280 smálestir að stærð, en í lögunum eru ekki ákvæði um minni verslunarskip í utanlandssiglingum en 300 smálesta. Þeir, sem hafa hið minna skipstjórapróf hafa heimild til að fara með fiskiskip minna en 300 smálestir milli landa, og með kaupför af sömu stærð í innanlandssiglingum. Skip það, er hjer ræðir um, var fiskiskip, þótt það væri nú, út úr vandræðum, notað til vöruflutninga, og var því hjer um svo lítilfjörlega undanþágu að ræða, að furðulegt má kalla, að hún skyldi ekki þegar vera veitt. Það getur ekki einungis hnekt siglingum, ef stjórnin vill ekki veita undanþágu, þegar svo erfitt er að fá menn til að sigla sem nú, heldur kemur það og hart niður á einstökum mönnum, er þeim er synjað um svo lítilfjörlega undanþágu sem þessa. Í þessu tilfelli var engin hætta samfara því að veita undanþáguna, því að maðurinn hafði fyrst verið stýrimaður hálft fimta ár og síðan í 13 ár skipstjóri, bæði innan lands og utan, og aldrei hlekst neitt á. Er mjer kunnugt um, að undanþágur hafa oft verið gefnar þegar síður skyldi. Jeg vildi ekki láta þetta liggja í þagnargildi, heldur beina því til stjórnarinnar að hún sýni eftirleiðis íslenskum skipstjórum eins mikla tilhliðrunarsemi og hún sjer sjer fært, án þess að stofna lífi manna í hættu; en um það er ekki að tala, þegar þrautreyndir skipstjórar eiga í hlut. Í þetta skifti virðist hún hafa farið að ráðum og tillögum einhverra miður góðgjarnra manna, en það ætti hún að varast eftirleiðis.
Jeg hefi orðið að grípa síðasta tækifærið á þessu þingi til að vekja máls á þessu, og vona, að það teljist ekki þingskapabrot, þar sem málið stendur í nokkru sambandi við 13. gr. fjárlaganna.