13.07.1917
Efri deild: 8. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1760 í B-deild Alþingistíðinda. (1718)
39. mál, fasteignamat
Flm. (Guðjón Guðlaugsson):
Það þykir ef til vill athugavert við frv. þetta, að lögin, sem það fer fram á að breytt verði, eru svo ung. Það er að vísu engin nýlunda, en altaf þykir þó leitt að breyta lögum, sem varla eru komin í framkvæmd.
Þetta frv. er, að vissu leyti, uppvakningur frá aukaþinginu síðastliðinn vetur. Var þá lagt fyrir Nd. líkt frv., en það kom ekki fyrir Ed. fyr en annríki var þar mest, svo að halda varð 3 umr. um sama mál, ekki að eins á einum degi, heldur jafnvel á einu kvöldi.
Var þá tilraun gerð til að drepa frv., eða öllu heldur til að svæfa það, með rökstuddri dagskrá, sem ekki gekk þó fram. Var frv. síðan óafgreitt frá þinginu.
Frv. það, sem nú er til umr., er að vísu í nokkuð annari mynd, en þó skylt að mörgu leyti.
Breytingar þær, sem farið er fram á í 1. gr. frv., eiga við 9. gr. fasteignamatslaganna. Þar er sagt, að til ábúðarskatts skuli hverjar 150 kr. í matsverði jarða taldar eitt hundrað á landsvísu, en slept skuli til ábúðarskatts því, sem verð húsa kann að fara fram úr helmingi af matsverði jarðar, að undanskildu verði húsanna og þeirra mannvirkja og umbóta, sem gerð hafa verið á jörðinni á síðustu 10 árum.
Frv. í vetur, sem vantaði ekki nema herslumuninn til að samþ. yrði, fór í þá átt að skýra grein þessa, sem að mörgu leyti þykir óljós, og sömuleiðis var það einn liður þess að skilja undan skatti hús þau, er á jörðu standa og eru eign annars en jarðeigenda.
En aðalefni frv. nú er það, að þegar til skattgreiðslu kemur, þá hvíli lægra gjald á hverjum 100 kr. í matsverði húsa heldur en á hverjum 100 kr. í matsverði jarða, eða með öðrum orðum, að ábúðarskattur af húseignum sje lægri en af jarðeignum.
Grein fyrir þessu er gerð í athugasemdum þeim, er frv. fylgja; vil jeg þó leyfa mjer að fara um það nokkrum orðum.
Það er öllum ljóst, að hús hjer á landi eru meiri eða minni eyðileggingu undirorpin, og þótt þau teljist sæmileg í ár, geta þau verið orðin hrörleg næsta ár. Sömuleiðis getur svo verið, að hús, sem nú eru að því komin að hrynja, verði bætt og bygð upp eftir skamma tíð. Í þeim sökum getur maður því ekki talað um nema stundarástand.
Það getur því ekki talist rjettlátt, að greiða skuli jafnháan skatt af hverjum 100 eða 1000 kr. í matsverði húsa og jarða.
Jarðir geta staðið til bóta og hækkað í verði að kostnaðarlausu, t. d. ef einhver nýr atvinnuvegur vekst upp eða óvænt hlunnindi, t. d. námur eða síldveiði, og fleira mætti til nefna. Og slíkt getur orðið án alls tilkostnaðar.
En hús geta aftur á móti engum umbótum tekið án stórkostnaðar, og óneitanlega mundi það draga úr framkvæmdum manna í húsabyggingum, ef þeir ættu von á þeirri hegningu fyrir framfarirnar, að lagður yrði eins þungur skattur á húsin og jarðirnar.
Þetta eitt virðist mjer næg ástæða til þess, að frv. þetta verði athugað og því ekki stungið undir stól, og vona jeg, að háttv. þm. komist við nánari athugun að sömu niðurstöðu. Jeg var hjer ekki viðstaddur við 1. umr., en ekki hefi jeg neitt út á það að setja, þótt frv. væri þá vísað til 2. umr. nefndarlaust. Var það tilætlun mín, að það væri sett í nefnd að þessari umr. lokinni.
Sumir, sem jeg hefi talað við um frv. þetta, hafa viljað sleppa ákvæðinu um skattinn. Er það ef til vill rjett og ekki brýn þörf að nefna hann í lögunum. Það, sem mest er um vert, er það, að eignirnar sjeu rjettilega metnar, eftir varanlegu verðmæti þeirra.
En því er nú svo háttað, að þótt það heyri ekki beinlínis undir lög þau, er fara skal eftir við framkvæmd fasteignamatsins, af hvaða eignum greiða skuli skattinn, þá verður það þó nauðsynlegt fyrir matsmenn að vita það. Jeg get, sem matsmaður, talað af reynslu í þeim sökum.
Fasteignamatsnefnd sú, sem jeg var í, fór að nokkru leyti eftir frv. frá í vetur. Taldi hún víst, að það yrði gert að lögum. Þar er gert ráð fyrir, að hús leiguliða og aðrir kofar, er á jörðum kunna að standa, sjeu undanþegnir skatti, og tók nefndin tillit til þess.
En nú getur svo verið, að ábúandi sje eigandi að nokkrum hluta jarðarinnar. Svo var einmitt ástatt á jörð þeirri, sem jeg mat fyrst. Ábúandinn átti um ¼ hluta jarðarinnar. Taldi hann upp hús þau, er jörðinni höfðu fylgt við síðustu úttekt, og voru þau harla lítils virði. Var það ein baðstofa, næstum gluggalaus og þiljulítil, og eitthvað af hálfföllnum útihúsum. Var ekki hægt að meta það meir en um 200 kr. Aftur á móti voru hús þau, er hann átti sjálfur, í ágætu standi, bæði heyhlöður og fjárhús, mörg járni varin og járnþakin. Voru þau að sjálfsögðu mörgum sinnum meira virði en jarðarhúsin. Samkvæmt 9. gr. fasteignamatslaganna slapp nú maður þessi skattlaus af húseignum sínum.
Á næsta bæ var þannig ástatt, að ábúandi átti jörðina alla, og varð því að telja fram öll hús sem jarðarhús, og samkvæmt 9. gr. laganna átti hann að greiða skatt af því af matsverði húsanna, sem ekki færi fram úr hálfu matsverði jarðarinnar.
Fyrri maðurinn er skoðaður sem leiguliði, þótt hann eigi nokkurn hluta jarðarinnar, og eftir því, sem mjer er kunnugt, átti hann von í að erfa síðar meira í henni; hann losnar við allan skatt af húseignum sínum. Síðari maðurinn verður aftur á móti að greiða skatt af öllum sínum húsum, sje matsverð þeirra ekki hærra en hálft matsverð jarðarinnar. Þetta fyrirkomulag, sem ákveðið er í lögunum, sýnist mjer því athugunarvert, og engin vanþörf á umbótum þeim, sem farið er fram á í síðustu málsgrein 1. gr. frv., nefnilega að leiguliði, sem á einhvern hluta jarðarinnar, greiði skatt af húsum sínum í sama hlutfalli og eign hans er í jörðinni.
Jeg álít því, að rjettast væri við matið að sundurliða fasteignir í þrent. Í 1. flokki yrðu jarðirnar sjálfar, í 2. flokki jarðarhús og í 3. flokki hús leiguliða.
Væri nú verð þessara flokka sundurgreint, mætti haga skattinum eftir því og láta þann leiguliða, sem einhvern hlut á í jörðinni, greiða skatt af húseign sinni í hlutfalli við það. Vona jeg, að hæstv. Ed. skilji þetta og fallist á það.
Þá er enn eitt atriði í 9. gr. laganna, sem jeg vildi leyfa mjer að minnast á. Það er ákvæðið um að undanskilja umbætur og mannvirki, sem gerð hafa verið á jörðinni í síðustu 10 árin.
Jeg sá mjer ekki fært að breyta ákvæði þessu, en hefði þó helst óskað, að það hefði aldrei verið til, því að það má heita ógerlegt að framfylga því.
Til þess að geta það þurfa matsmenn að hafa þekt jörðina og umgengni alla fyrir 10 árum, en þannig er ekki altaf til háttað.
Fasteignamatsnefnd sú, sem jeg var í, sá sjer ekki fært að framfylgja ákvæði þessu. Var það þó ekki af ókunnugleika einum. Samkvæmt reglugerð stjórnarráðsins fengum við skýrslur hjá hreppstjóra og formanni búnaðarfjelagsins um endurbætur þær, sem gerðar höfðu verið á síðustu 10 árum. Lögðum við endurbætur þessar í dagsverk og möttum dagsverkið á 2,50, og getur það naumast talist ofhátt, þegar þar í er innifalið fæði, kaup og alt saman. Fengum við það út, að einstöku jarðir urðu mjög lítils virði, og komust sumar niður í ekki neitt. Ein jörð
(6 hndr. að stærð) var metin 1000 kr. virði, en samkvæmt skýrslum hreppstjóra og formanns búnaðarfjelagsins námu endurbætur á henni á síðustu 10 árum 14—1500 kr.
Maðurinn hefði því átt að fá 400— 500 kr. að gjöf, til þess að taka við henni fyrir 10 árum.
Við sáum okkur því ekki fært að fara eftir ákvæði þessu, en tókum að eins tillit til endurbótanna, einkum þeirra nýjustu, og settum verð hinna upp gefnu endurbóta í dálk sjer, dagsverkið á kr. 2,50, meir til fróðleiks en til þess að draga þær upphæðir frá sannvirði jarðanna.
Þá er annað, sem athugavert er við ákvæði þetta. Matið stendur yfir á 3. ár. Matsmenn, sem byrjuðu að meta snemma á árinu 1916, undanskilja 10 ára endurbætur, en þegar endað er að meta, verða 12 ára umbætur undanskildar hjá þeim, sem byrjað var á. Bendir því alt til þess, að ákvæði þetta sje ómögulegt. Treysti jeg mjer þó ekki til að afnema það, einkum vegna þess, að búast má við, að matsmenn líti misjafnt á. Getur verið, að sumir sleppi því, sem aðrir taka til greina, og undanskilji það, sem aðrir gera ekki.
Ef vel ætti að fara, hefði helst þurft að senda mann út um landið, til að stjórna í hverri sýslu og sjá um, að alt yrði rjett og nákvæmt, og sjerstaklega í fullu samræmi.
2. gr. frv. er um það, að kaupið verði hækkað úr 5 kr. upp í 7 kr. Það gekk í gegnum Nd. í vetur að hækka það úr 5 kr. upp í 6 kr. En að líkindum var það þessi eina króna, sem varð frv. hjer að fótakefli. Jeg man það, að einn háttv. þm., sem annars tók aldrei til máls, stóð þá upp og mótmælti kauphækkun þessari. Var það hv. þm. 2. Húnv. (G. Ó.).
Býst jeg því við, að þetta fái ekki góðar undirtektir. Annars er mjer það ekki neitt sjerstakt kappsmál.
Það getur vel verið, að einhverjum þyki þetta 7 kr. kaup ofhátt, en ef þeir vildu athuga daglaun þau, sem óbreyttir verkamenn fá hjer í Reykjavík — er það yfir 7 kr. á dag — þá sjá menn strax, að þetta kaup er ekki ofhátt, ekki hvað síst er þess er gætt, að í því er falinn ferðakostnaður.
Ferðakostnaðurinn var raunar ekki mikill hjá okkur Strandamönnum. Í matsnefndinni þar var sóknarpresturinn í þremur hreppum, sem var nákunnugur á hverjum bæ, og jeg, sem hafði verið búsettur í 3 af 4 hreppunum og var þar öllum nákunnugur. Jeg vonast, því til að fasteignamatsnefnd Strandasýslu verði langódýrust allra fasteignamatsnefnda landsins.
Jeg þurfti um daginn að fara frá Blönduósi norður á Akureyri, á fund, sem var haldinn þar. Jeg fór fyrsta áfangann sjóveg. Jeg fjekk 2 hesta til fararinnar; annar þeirra kostaði 4 kr. á dag, frá því að jeg fjekk hann og til þess að hann kom heim aftur, en hinn hesturinn kostaði 3 krónur á dag.
Hvernig líst nú háttv. þingm. á, ef fasteignamatsmennirnir þyrftu svo dýra fararskjóta, og auk þess yrðu þeir að kaupa fóður handa þeim á næturnar?
Jeg er hræddur um, að það sje ekki hægt að álíta þetta sanngjarnt kaup. Setjum svo, að fasteignamatsnefndarmaðurinn þyrfti að kaupa hest, er kostaði 4 kr. um daginn, og færi að ríða honum um sveitir landsins, til þess að meta aðaleignir þjóðarinnar, verk, sem er vandaverk, og mikið undir komið að sje vel af hendi leyst. Það væri þá svo, að hesturinn hefði 4 króna dagkaup, en maðurinn fengi 1 kr. fyrir að sitja á bykkjunni. Og ef gert væri ráð fyrir, að hann þyrfti 2 hesta, og þeir kostuðu hið sama og jeg varð að greiða núna í sumar, eins og jeg sagði áðan, eða 7 kr. á dag, þá fengju hestarnir alt landssjóðskaupið, en auk þess yrði hann sjálfur að greiða 1 kr. fyrir hverja dróg.
Það sjá allir, að svo má þetta ekki vera. Það er vandaverk, sem fasteignamatsnefndirnar eiga að inna af hendi, og það er alls ekki rjett, að þeir, sem að því vinna, sjeu ómagar við starfið, eða verra en það.
Satt er það, að hjer er um virðingarstarfa að ræða. Það er auðvitað heiðursstarfi, eins og annað, sem maður er kosinn til að gera. En þótt svo sje, þá finst mjer ekki rjett að gjalda svona háan metorðaskatt af honum.
Jeg hefi, að minsta kosti til bráðabirgða, sett í frv., að gjald þetta eigi og að ná til þeirra, er hafa int starfið af hendi, því að ef svo væri ekki, þá væri eins og það væru að eins verðlaun til þeirra, sem eru ekki enn farnir að inna verkið af hendi, en hafa hins vegar með því tafið fyrir yfirmatsmönnunum. Og þótt þeir sjeu ekki búnir enn, þá er í rauninni ekkert um það að segja, því að eftir lögunum þurfa þeir ekki að hafa lokið verkinu fyr en í júlí 1918, svo að þeir geta látið sjer nægja að segja, að þeir skuli þá vera búnir með það. En að þeir beri betra kaup úr býtum fyrir drátt sinn sjá allir að ekki er rjett.
Þá hefi jeg sett í frv., að auk þess skuli borgað úr landssjóði fyrir sendiferðir, símagjöld og ritföng fyrir nefndina.
Síðan jeg bjó til frv. hefi jeg orðið þess var, að stjórnarráðið greiðir þessa reikninga, en þótt svo sje, þá tel jeg rjettara, að þetta sje í lögunum, því að mjer virðist svo, sem fasteignamatslögin heimili ekki þessa greiðslu. Þau segja raunar, að landssjóður greiði allan kostnað, og þar eru t. d. hinar sjálfsögðu og vönduðu bækur, sem stjórnarráðið hefir sent fasteignamatsnefndunum. Stjórnarráðið hefir enn fremur greitt húsaleigu fyrir stofur þær, er matsmennirnir hafa unnið í. Það tel jeg síður nauðsynlegt og alls ekki samkvæmt lögunum, jafnvel enn síður en símagjöld og sendiferðir, því að í lögunum er enginn kostnaður sjerstaklega nefndur, nema þessir 5 kr. fæðispeningar.
Þetta eru ástæðurnar til þess, að jeg ber fram frv. Jeg tel rjettara, að málið verði athugað í nefnd, og vil því leyfa mjer að stinga upp á, að því verði vísað til fjárveitinganefndar, að þessari umr. lokinni.