13.07.1917
Efri deild: 8. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1767 í B-deild Alþingistíðinda. (1719)

39. mál, fasteignamat

Eggert Pálsson:

Jeg verð að segja það, að mjer finst það ekki nema eðlilegt, að svona frv., eða frv. í svipaða átt, kæmi fram nú á þessu þingi, því að það er mjög svipað frv. því, er borið var fram hjer á vetrarþinginu síðast, en vanst ekki tími til að ganga frá.

Ástæðan til þess, að frv. það var borið fram, var sú, að það þótti orka tvímælis, hvernig ætti að skilja 9. gr. fasteignamatslaganna. Jeg held, að það hafi verið sjerstaklega matsmenn Rangæinga, sem fóru fram á það, að greinin væri skýrð, á einhvern þann hátt, er þinginu þætti best við eiga. Frv. var samþ. í hv. Nd., en komst að eins hingað upp til deildarinnar, en náði ekki að verða útrætt. Með þetta fyrir augum finst mjer eðlilegt, að þetta frv. komi fram, og að 9. gr. laganna verði skýrð, svo vel sem unt er.

En eins og hv. flm. (G. G.) tók fram er þó talsverður munur á þessu frv. og því, sem lagt var fyrir þingið í vetur.

Aðallega er hjer um einn verulegan mun á frumvörpunum að ræða, en hann er sá, að hjer er gert ráð fyrir, að 300 kr. í húsavirðingu jafngildi 100 kr. í jarðavirðingu, þar sem ekki var gert ráð fyrir slíkum mismun í frv. því, er fyrir lá í vetur sem leið. Eftir þessu frv. þarf meira en áður í húsum til þess að komast á móts við jörð.

Jeg fyrir mitt leyti get vel gengið inn á þetta, og þykist skilja rökfærslu hv. flm. (G. G.) fyrir því. Það er vitanlega minni eign í húsum en í jörðum, því að jörðin gengur ekki eins af sjer eins og húsin hljóta að gera. Að sjálfsögðu geta komið fyrir náttúruáföll, er rýra jörðina í gildi, en annars gengur hún ekki svo mikið af sjer að jafnaði.

En þótt mjer finnist þessi tilraun hins háttv. flm. (G. G.), til að jafna mismun húsa og jarða, skiljanleg, þá virðist mjer, sem hann hafi ekki gengið nógu langt. Jeg hygg, að best mundi fara á í þessu efni, að öllum húsum væri slept í fasteignamatinu.

Frá mínu sjónarmiði er ekki nema um tvær færar leiðir að ræða; önnur er sú, að sleppa algerlega húsunum í matinu, en hin er, að viss upphæð króna í húsavirðingu ætti að fylgja hverju jarðarhundraði; með því móti væri fengin föst regla. En, eins og gert er ráð fyrir þessu í frv. og eins og gert var ráð fyrir því í frv. í vetur og í sjálfum lögunum, verður þetta altaf meira eða minna grautarlegt og ósanngjarnt.

Þessu til skýringar skal jeg taka dæmi. Í síðustu málsgrein 1. gr. frv. er gert ráð fyrir því, að ef ábúandi jarðar er eigandi að nokkrum hluta ábýlis síns, en leiguliði á nokkurn, þá beri að telja það af húsum, sem hann á sjálfur, skattskyld í sama hlutfalli, sem eign hans er í jörðinni. Jeg skal nú reyna að sýna, að þetta ákvæði er ósanngjarnt. Hugsum oss, að maður búi á jörðu, sem er 40 hndr. að dýrleika. Frá fornu fari hafa jörðunni fylgt ýms jarðarhús, en þau eru orðin gömul og hálffallin og geta ekki talist nema 200 kr. virði. Helminginn af jörðunni eða 20 hndr. á ábúandinn, en hinn helminginn hefir hann tekið á leigu, og hefir hann bygt á jörðunni íbúðarhús, sem hann á og metið er á 3000 kr. Afleiðingin af þessu er sú, að hálfri jörðunni fylgja hús, sem eru virt á 100 krónur til mats, og hækkar því eftir frv. sá helmingur jarðarinnar í mati um ? úr hundraði, svo að þessi hálflenda verður skattskyld sem 20,33 hndr.

Íbúðarhús það, er ábúandinn hefir bygt, telst að hálfu sem jarðarhús, og helmingurinn af andvirði þess, eða 1500 kr., koma því til skatts, og ber að reikna þau sem 5 hndr.; þessi hálflenda verður því til skatts metin nær 5 hndr. dýrari en hin hálflendan, eða á 25 hndr. Það sjá allir, að í þessu er lítil eða engin sanngirni.

Mjer finst það vera galli á frv. því, er hjer liggur fyrir, að þess er alls ekki getið, hvaða greinar falli úr gildi í fasteignamatslögunum við það, enda mintist hv. flm. (G. G.) á þetta. Ef það er ekki beinlínis tekið fram, þá er jeg hræddur um, að það geti orðið skiftar skoðanir um, hvað í gildi sje. (K. D.: Það er vafalaust; þetta hlýtur að vera gleymska.) (G. G.: Jeg vildi láta það bíða nefndar.) Jeg held, að það sje nauðsynlegt að taka þetta skýrlega fram.

Jeg kannast fyllilega við það, að það er erfitt að meta sjerstaklega síðustu 10 ára jarðabætur, en það er þó nauðsynlegt, ef unt á að vera að undanþiggja þær skatti, sem jeg tel alveg nauðsynlegt. Mjer finst það afaróviðfeldið, ef farið væri að gera þær skattskyldar, enda var það ætlun beggja nefnda þingsins, þegar fasteignamatslögin voru samþykt, að svo væri ekki. Hjer er að ræða um framtakssemi og dugnað manna, og væri einkar óviðfeldið að fara að skattskylda þá fyrir slíkan dugnað og framtakssemi, og það jafnvel strax á fyrsta ári eftir að þeir hefðu framkvæmt umbæturnar og standa ef til vill í skuld fyrir þær. Jeg vil því halda því fram, að síðustu 10 ára jarðabætur sjeu undanþegnar skatti, eins og jeg tel að eigi að skilja 10. gr. fasteignamatslaganna, eins og hún nú liggur fyrir.

Að því er snertir þessa 7 kr. dagpeninga, sem fasteignamatsmenn eiga að hafa samkvæmt frv., þá er ekki svo að skilja, að jeg telji það í sjálfu sjer ofháa borgun. En þess ber að minnast, að það eru svo mörg trúnaðarstörf í mannfjelaginu, sem eru lítt borguð. Og er því spurning um það, hvort við eigum að borga þetta vel, þegar við borgum illa á öðrum líkum sviðum; t. d. hafa sýslunefndarmenn ekki nema 4 kr. á dag. Í frv. í vetur var gert ráð fyrir að hækka laun matsmannanna upp í 6 kr., úr 5, en nú er hjer farið fram á 7 kr.

Þetta atriði er þess vert, að það sje athugað, því að mjer finst afleiðingin af því sú, ef við hækkum kaup matsmannanna, að þá verðum við líka að hækka kaup annara starfs- og trúnaðarmanna þjóðfjelagsins.

Háttv. flm. (G. G.) lagði til, að málinu yrði vísað til fjárveitinganefndar; það finst mjer ekki rjett, því að eftir eðli sínu finst mjer, að málið heyri undir landbúnaðarnefnd. Jeg geri því að till. minni, að málinu verði vísað þangað, og jafnframt, að 2. umr. verði frestað. Það er þeim mun meiri ástæða til að fresta 2. umr., þar sem málið, af sjerstökum ástæðum, var afgreitt alveg hljóðalaust við 1. umr. (G. G.: Jeg felst á það að fresta umræðum).