08.08.1917
Efri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1796 í B-deild Alþingistíðinda. (1734)
39. mál, fasteignamat
Sigurður Eggerz:
Mjer sýnist, eins og jeg tók fram áður, að það muni vera allathugavert að fella takmörkunina burt úr lögunum á því húsverði, sem komi til skattaálagningar. Dæmi það, sem háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) tók, sýnir, að ef jörðin er 20000 kr. virði og húsin 10000 kr. virði, þá kemur takmörkunin þar ekki til greina; það er alveg rjett. En á það er þá hins vegar að líta, að þessi jörð, sem er 20000 kr. virði og húsin 10000 kr., verður ekki talin yfirbygð, og er því í sjálfu sjer ekki athugavert að skattleggja húsin þar.
Taki jeg aftur annað dæmi, um að 15000 kr. hús sje bygt á 5000 kr. jörð, þá er ekki, samkvæmt núgildandi lögum, skattlagt nema um 2500 kr. af húsverðinu. En samkvæmt brtt. yrði alt húsverðið skattlagt. Jeg get ekki sagt, að neitt sje athugavert við það. En það tel jeg mjög óeðlilegt, þar sem hús á slíkri jörð mundu stór baggi á hlutaðeiganda, jörðin yfirbygð, eins og oft á sjer stað, og því órjettlátt að leggja skatt á þær eignir, sem engan arð veita, en eru svo kostnaðarsamar, að þær gera búskap á jörðinni mjög óaðgengilegan. Það hefir, að því er virðist, vakað fyrir löggjafarvaldinu í 9. gr., að um leið og jörð og hús væru lögð í skatt, þá væri tekið tillit til þess, að húsin væru við hæfi jarðarinnar. Væri ekki takmörkunum haldið í skattgildi húsanna, þá er ofnærri gengið þeim, sem verja miklu fje til að húsa jarðir sínar. Jeg vara því við því að fella þessa sjálfsögðu takmörkun á skattgildi húsanna úr lögunum.