11.08.1917
Efri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1803 í B-deild Alþingistíðinda. (1742)

39. mál, fasteignamat

Frsm. meiri hl. (Guðmundur Ólafsson):

Háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) hjelt því fram, að því er mjer skildist, að 9. gr. fasteignamatslaganna yrði ekki að notum til þess að ákveða skatt, þegar fasteignamatsbókin væri komin í gildi. En eftir 9. gr. fasteignamatslaganna er gangverð jarðarhundraða 150 kr. Jörð, sem metin er svo og svo mörg hundruð króna, er talin svo og svo mörg hndr. á landsvísu til ábúðarskatts eftir matsverðinu. Það sjest því samkvæmt 9. gr, hve mörg hundruð hún er, þangað til ný skattalög kunna að gera breytingu á því.

Háttv. 4. landsk. þm. (G. G.) gat þess, að líklega yrði háð aukaþing að ári. Það tel jeg þó engan veginn víst, og ekki heldur áreiðanlegt, að það aukaþing og næsta reglulegt þing ráði skattalögum til lykta. Skattamál eru vandasöm mjög, og hafa margir háttv. þm. látið þá skoðun uppi opinberlega nú á þinginu, að ógerlegt sje að leggja út í nokkrar verulegar breytingar á skatta- og tollalöggjöf landsins meðan svipað ástand helst og nú er hvað verslun og framleiðslu snertir.