21.08.1917
Efri deild: 35. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1819 í B-deild Alþingistíðinda. (1765)
54. mál, húsmæðraskóli á Norðurlandi
Frsm. (Eggert Pálsson):
Það er að vísu eigi margt um þetta mál að segja. En þó er ekki hægt að neita því, að hjer er um allmikilsvert mál að ræða. Í fyrsta lagi er það mikilsvert þeim, sem skólans eiga að verða aðnjótandi, og í öðru lagi er það merkilegt að því er til landssjóðs kemur, því að hjer er um ný útgjöld af hans hálfu að tefla. Og þessi útgjöld eru ekki að eins fólgin í því að koma upp skólanum, heldur og einnig í viðhaldi á honum, og til þess þarf allmikið fje, sem við er að búast að aukist með tímanum. En þótt hjer sje um útgjöld að ræða, áleit nefndin sjálfsagt að sinna málinu. Það hafa komið æ glöggari óskir frá þessum hjeruðum um, að slíkum skóla, sem hjer um ræðir, yrði komið þar á fót. Og það er langt síðan þessar óskir komu fyrst fram. Má segja, að fyrstu lifandi óskirnar sjeu hjer um bil jafngamlar kvennaskólanum gamla í Reykjavík. En, eins og skjölin bera með sjer, hafa þessar óskir þroskast smám saman og orðið eindregnari.
En þótt óskirnar sjeu að þessu leyti samræmilegar, þá kemur þeim þó ekki saman um, hvar skólinn skuli stofnaður. Um það virðist vera talsverður ágreiningur, hvort skólinn skuli standa í Þingeyjarsýslu eða Eyjafirði eða á Akureyri. Meiri hluti sveitanna óskar, að skólinn standi í sveit. En Akureyrarkaupstaður, sem er mannmargur, æskir, að hann verði reistur þar. En það er auðvitað ekki greitt fyrir eina þingnefnd, sem svo er skipuð, að hún hefir lítinn áhuga á því, hvar skólinn skuli standa, að greiða úr þessum ágreiningi. Hins vegar hlaut nefndin samt að láta í ljós sína skoðun á þessu atriði málsins, og meiri hluti hennar áleit, að slík stofnun sem þessi hlyti að verða reist þar, sem auðvelt væri um aðdrætti, til þess að koma henni upp og starfrækja hana. En vjer vitum, að í sveitum eru aðdrættir víðast hvar erfiðir, og þá er ekki annað að leita en til sjávarins. Þess vegna áleit meiri hluti nefndarinnar, að hagkvæmast mundi að reisa skólann við Eyjafjörð. Hann má heita miðdepill allra samgangna við Norðurland, og jafnframt er þar þjettbýli mest og yfirleitt allir aðdrættir auðveldastir. En annars var það ekki beinlínis hlutverk nefndarinnar að greiða úr þessu. Hún vonast til, að leyst verði úr ágreiningnum með samkomulagi milli hlutaðeigenda og ákvæðum af stjórnarinnar hálfu. Að því lýtur fyrsta brtt. nefndarinnar, að skólann skuli stofna við Eyjafjörð, í staðinn fyrir á Akureyri eða í grend við Akureyri. En hún vildi ekki ákveða staðinn nánar og vonaði, að það mundi verða að samkomulagi, hvort skólinn yrði reistur á Akureyri eða þar í grend, eins og flutningsmaður (M. K.) ætlaðist til, eða annarsstaðar við fjörðinn.
Aðrar brtt. nefndarinnar eru ekki svo mikils verðar, að eyðandi sje orðum að þeim, að 5. brtt. fráskilinni.
Hinar brtt. nefndarinnar eru fremur orðabreytingar en efnisbreytingar, að öðru en því, að nefndin leggur til, að hjerað það, þar sem skólinn verður reistur, leggi fram ? kostnaðar. Þetta er í fullu samræmi við gerðir þingsins í mörgum öðrum málum, t. d. framlög til hafna, vega o. fl, og nefndinni fanst það rjett, að hjerað það, er fær skólann innan sinna vjebanda, leggi skerf til hans.
Jeg hygg, að brtt. nefndarinnar sjeu svo greinilegar, að jeg þurfi ekki að skýra þær nánar, en óska þess, að frv., með breytingum nefndarinnar, nái fram að ganga.