21.08.1917
Efri deild: 35. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1821 í B-deild Alþingistíðinda. (1766)
54. mál, húsmæðraskóli á Norðurlandi
Guðmundur Ólafsson:
Jeg er ekki að öllu leyti sammála háttv. meðnefndarmönnum mínum og hefi því skrifað undir nefndarálitið með fyrirvara.
Meðnefndarmenn mínir eru sammála um það, að rjett væri að breyta því í frv., að skólinn ætti að vera á Akureyri eða í grend við hana, og er jeg þeim samþykkur um það. Þá hefir nefndin sett í staðinn fyrir það, að skólinn eigi að standa við Eyjafjörð, og miðar hún við það, að best sje, að skólinn sje þar í sveit settur, sem þægilegt er með aðflutninga. En þegar verið er að ræða byggingu skólahúss, þá má ekki taka minna tillit til þess, hvar hægast er með alt efni til byggingarinnar, og það geta annarsstaðar verið betri skilyrði fyrir því heldur en niður á sjávarbakkanum. Mjer hefði fundist rjettast, úr því að samkomulag hefir orðið um það, að ekki sje rjett að fastákveða, hvar skólinn eigi að vera, að Alþingi hefði látið það vera alveg óákveðið, að eins ákveðið, að hann skyldi stofnast á Norðurlandi. Það er líka í beinu samræmi við fyrirsögn frumvarpsins. Við vitum það, að það er nú allmikill ágreiningur um það, hvort skólinn eigi að standa í sveit eða kaupstað, og úr þeim ágreiningi leysir frv. ekki. Og þótt það kunni að vera ódýrara að reisa skólahúsið við sjó, þá verða hv. þm. að gæta þess, að rekstrarkostnaðurinn við sveitaskóla er venjulega mun minni en við kaupstaðarskóla.
Við 1. umr. þessa máls lagði hv. þm. Ak. (M. K.) mikla áherslu á það, að það væri almennur vilji þar nyrðra, að skólinn væri bygður á Akureyri, og vitnaði í því efni til undirskrifta á aðra þús. kvenna á Norðurlandi, en síðan sú umr. var hafa borist undirskriftir frá mjög mörgum konum á Norðurlandi, sem telja það óheppilegt, að skólinn sje á Akureyri, en óska þess, að hann sje í sveit, og þær eru fleiri en hinar. Um þetta mál hefir allmikið verið ritað í norðanblöðin, og hefi jeg kynt mjer það, og finst mjer, að þær konur, er vilja hafa skólann í sveit, færi gildari rök fyrir máli sínu. Vil jeg þar sjerstaklega benda á greinar húsfrú Jónínu Sigurðardóttur Líndal, en hún hefir aðallega haft orð fyrir konum þeim, sem vilja hafa skólann í sveit.
Þá talaði þessi hv. þm. (M. K.) mikið um það, hversu ötullega »forstöðukonurnar á Akureyri« hefðu unnið að undirbúningi málsins nyrðra. En jeg held, að þessi mikli undirbúningur þeirra, sem háttv. þm. (M. K.) talaði um, sje mest fólginn í því að þrátta um það, hvar skólinn eigi að standa; jeg hygg, að hann sje ekki jafnmikill í öðru. Þær hófu undirskriftir um það, að best væri að skólinn væri á Akureyri; þar væri, aðalfólkið, aðalmenningin, aðalverslunin og hamingjan, og þá einkum að telja allan þann »aðal«, sem þær töldu að þar væri saman kominn, en þær hafa ekki gengist fyrir fjárframlögum eða boðið þau fram til stofnkostnaðar skólans, en safnað þó einhverju fje til styrktarsjóðs við skólann, ef hann kemst á fót.
Á undirbúningi þeirra er lítið byggjandi.
Af þessu, og þar sem það er ætlunin, að hjerað það, sem skólinn er reistur í, leggi fram fje til stofnkostnaðarins, þá hefði mjer fundist rjettast, að alveg hefði verið óákveðið, að þessu sinni, hvar á Norðurlandi skólinn ætti að standa.
Hvað hitt atriðið snertir, er varð að ágreiningi í nefndinni, var, að mjer þótti rjettara, að í frv. stæði, að skólinn skyldi settur á stofn er fje væri veitt til hans í fjárlögum, en þar stendur nú, að það skuli gert »er efni og annað fáist með viðunanlegum kjörum«, en um það, hve nær það er, geta orðið fremur skiftar skoðanir heldur en ef hitt ákvæðið væri sett. Og þannig litu hv. meðnefndarmenn mínir á það fyrst, þótt þessi yrði niðurstaðan að lokum.