21.08.1917
Efri deild: 35. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1826 í B-deild Alþingistíðinda. (1769)
54. mál, húsmæðraskóli á Norðurlandi
Guðmundur Ólafsson:
Jeg þarf ekki að eyða mörgum orðum að ræðu hv. þm. Ak. (M. K.), því að mikið af því, er hann sagði, var beint til meiri hluta nefndarinnar. Hann var að tala um það, að kvenfólk það, er hefði ritað undir áskorun til þingsins um að skólinn stæði í sveit, væri ungt að aldri; það má vel vera, að svo sje; jeg þekki ekki aldur þess, þótt jeg hafi sjeð undirskriftir þeirra; býst jeg við, að háttv. þm. Ak. (M. K.) sje mjer snjallari að þekkja aldur og verðleika kvenþjóðarinnar, en þótt hann hafi einhverja sjerþekkingu í því, þá verður þingið, sem ekki kann aldurinn, að meta undirskriftirnar jafnt, enda ekki ótrúlegt, að margar ungar blómarósir hafi ritað undir skjöl þau, er háttv. þm. (M. K.) hampar, og tel jeg það ekki þurfa að rýra gildi þeirra.
Sami háttv. þm. (M. K.) var að hnýta í Blönduósskólann og taldi líklegt, að að jeg hefði haft aðra skoðun um þessi mál er hann var reistur, en hjer veður háttv. þm. (M. K.) reyk; Blönduósskólinn var bygður áður en jeg fór að taka þátt í opinberum málum, svo að jeg hafði engin afskifti af því, hvort skólinn var settur í sveit eða kaupstað. Og ekkert ilt hygg jeg að háttv. þm. (M. K.) geti sagt um Blönduósskólann, og þótt eitthvað fyndist á hinni löngu starfsbraut hans, sem honum mætti til miska teljast, þá kemur það þessu máli ekki við. Nú vill háttv. þm. (M. K.), að skólinn sje reistur á Akureyri; vill hann má ske styðja það með því, að Eyfirðingar ljetu kvennaskóla, sem hafði staðið þar í mörg ár, deyja í höndunum á sjer. Það eru þó varla meðmæli.