21.08.1917
Efri deild: 35. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1830 í B-deild Alþingistíðinda. (1773)
54. mál, húsmæðraskóli á Norðurlandi
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Jeg skaut því til háttv. frsm. (E. P.), hvaða skilning beri að leggja í ákvæðið, að skólann skuli stofna við Eyjafjörð. Kvaðst jeg vera ánægður með ákvæðið, ef með því væri meint það, að hann skyldi standa við flutningabrautina eða þar, sem hægt væri um aðdrætti. Þessu hefir ekki verið mótmælt, og vona jeg því, að sá skilningur minn sje rjettur, að til sje ætlast, að skólinn standi á einhverjum heppilegum stað utan Akureyrar.