15.09.1917
Efri deild: 59. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í B-deild Alþingistíðinda. (178)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Jóhannes Jóhannesson:

Eins og háttv. frsm. fjárveitinganefndar (E. P.) tók fram var nefndin ekki ánægð með, eða taldi til bóta, allar þær breytingar, sem háttv. Nd. hefir gert á fjárlagafrv. síðan það fór hjeðan.

Hins vegar verður að viðurkenna það, að sú háttv. deild hefir tekið mjög mikið tillit til þessarar deildar, þar sem stórmálin, dýrtíðaruppbótarfrv., dýrtíðarhjálparfrv. og tekjuskattsfrv., náðu fram að ganga þar í þeirri mynd óbreyttri, sem þessi deild hafði sett þau í.

Þetta hafði þau áhrif á fjárveitinganefnd þessarar deildar, að hún vildi ekki etja kappi um tiltölulega smá atriði, sem á milli bar, við háttv. Nd., og hafði það að sjálfsögðu engin áhrif á nefndina, þótt í hinni deildinni heyrðist við meðferð hinna umræddu mála einstök hjáróma rödd í garð þessarar deildar, frá þröngsýnum mönnum, já, svo þröngsýnum, að þeir sjá ekki út fyrir kjördæmi sín.

Jeg skal loks taka það fram, að í fjárveitinganefnd Ed. var engin samþykt gerð á móti brtt. hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) um eftirlaun og fje til ritstarfa til skáldsins Indriða skrifstofustjóra Einarssonar. Tel jeg víst, að við þeirri fjárupphæð hefði ekki verið reynt að hreyfa, þótt fjárveitinganefndin hefði viljað láta frv. fara í sameinað þing.