10.09.1917
Neðri deild: 56. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1839 í B-deild Alþingistíðinda. (1789)
54. mál, húsmæðraskóli á Norðurlandi
Frsm. (Bjarni Jónsson):
Mjer hefði fundist, að þetta mál hefði getað gengið orðalaust nú í gegnum deildina, því að ef menn hefðu viljað leggja á móti því, þá var góður tími til þess við 2. umr. Svo að jeg snúi mjer nú að brtt., sem fram er komin, þá tel jeg hana heldur til spillis. Nefndin fjölgaði heimavistunum af því, að hún kunni ekki við að hafa svo lítið skólahús handa heilum landsfjórðungi, sem frv. gerði ráð fyrir, er það kom frá háttv. Ed., því að hvað eru 40 heimavistir handa öllum Norðlendingafjórðungi, hvað þá heldur 24? (M. Ó.: En stærðin á kenslustofunum?) Það þarf ekkert lagaákvæði til þess að ákveða hana, en annars verður henni hagað eftir stærð alls hússins, og því er síst bót að því að fækka heimavistunum. Nefndin vildi ekki heldur skera úr þeirri deilu, sem minst hefir verið hjer á, því að hún treysti sjer ekki til þess. Þingið á ekki heldur að skera úr henni, heldur hjeraðastjórnirnar í samráði við landsstjórnina, án þess að löggjafarvaldið fari neitt að sletta sjer fram í það. Það er ómögulegt fyrir þingið að skera úr því, hvar heppilegast er að hafa skólann; það verða kunnugir menn að gera. Nefndin hefir að eins lagt áherslu á það, að hann yrði settur þar, sem ekki yrði ofdýrt fyrir neinn hlutaðeiganda að sækja hann. Vonandi fellur brtt., því að hún gæti orðið þess valdandi, að settur yrði á stofn ómyndarskóli, í stað góðs skóla, sem þessi heili landsfjórðungur á heimting á að fá.
Þá er það háttv. 1. þm. Árn. (S. S.). Hann kvaðst ekki skilja, hvers vegna þetta mál ætti endilega að ganga fram á þessu þingi. Það er undarlegt að heyra þau orð af munni þess vísa þm. (S. S.), því að hann hefir nú setið á mörgum þingum og nurlað fyrir landssjóð, horft oft og tíðum í hundruðin eða jafnvel tugina. Mjer þykir því undarlegt, að nú, þegar pappírinn er svo dýr, þingkostnaðurinn mikill og tíminn dýrmætur, skuli þessi háttv. þm. (S. S.) vilja drepa málið við 3. umr. hjer, eftir að það er búið að ganga í gegnum báðar deildir. Það væri skrítið að fara að fella þetta mál nú, taka það síðan upp aftur á næsta þingi og halda þá allar sömu ræðurnar um það og nú hafa verið haldnar. Prentararnir græddu á því, en þeir væru líka þeir einu, sem það gerðu. Hvað háttv. þm. Árn. (S. S.) meinti með því að hafa á móti því, að þessi lög yrðu samþ. nú, þótt þau gætu ekki komið til framkvæmda á næstu 2—3 árum, það var mjer ekki vel ljóst, því að það má undirbúa verkið á ýmsan hátt, jafna þá misklíð, sem er á milli manna, útvega jarðnæði fyrir skólann, og úr því að stjórninni er veitt heimild til að verja fje til atvinnubóta, mætti undirbúa ýms verk í sambandi við þennan skóla, draga sand og grjót að staðnum, sem húsið á að standa á, og fleira. Þetta gæti einmitt orðið til atvinnubóta fyrir Akureyringa. Það er svo margt, sem mælir með því, að þetta frv. verði samþykt nú. Jeg skal geta þess viðvíkjandi því, sem háttv. þm. (S. S.) sagði um þröng á jarðnæði í grend við Akureyri, að það mun vera völ á mörgum jörðum þar, en jeg nefni þær ekki, af því að nefndin kom sjer saman um að segja ekki neitt það, er benti á það, að hún ætlaði sjer að útkljá þessa umræddu deilu frekar en gert er í nál.
Jeg þykist hjer með hafa sýnt, að það er engin ástæða til að fresta þessu máli fyrir þá, sem á annað borð vilja láta það ganga fram einhvern tíma. Þeir, sem eru alveg á móti því, að það gangi nokkum tíma fram, geta auðvitað verið á móti því nú, en annars sje jeg enga ástæðu til að fara að tyggja aftur upp á næstu þingum alt það, sem sagt hefir verið um málið nú.