21.08.1917
Neðri deild: 39. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í B-deild Alþingistíðinda. (18)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Gísli Sveinsson:

Hæstv. landsstjórn hefir nú látið til sín heyra út af því, sem að var fundið og spurt var um í þrennu lagi, eða má ske öllu heldur í einu lagi. En eins og jeg tók fram í fyrri ræðu minni, og eins og hæstvirtur forsætisráðherra hefir játað, þá hljóta höfuðatriðin í verkum stjórnarinnar að liggja undir rannsókn og úrslitadómi síðari tíma. Það verður því ekki til neins að ætla sjer að fara að skýra eða dæma þau að svo komnu, því að það mundi ekki verða nægilega skýrt á hvoruga hlið.

Hæstvirtur forsætisráðherra gat þess í ræðu sinni, að þær skýringar, sem stjórnin gæti gefið á gerðum sínum, væri að finna í skýrslu þeirri, sem afhent hefir verið háttv. bjargráðanefnd. Eins og mönnum er kunnugt er jeg ekki í þessari nefnd, enda mun jeg hafa getið þess í ræðu minni áðan, að jeg hefði ekki átt kost á að sjá nefnda skýrslu. Það getur vel verið, að eitthvað sje þeim nú ljósara, er sjeð hafa þessa skýrslu, en eftir því, sem jeg hefi komist næst, hjá sumum háttv. þingmönnum og nefndarmönnum, þá mun þar ekki vera skýrt betur eða greinilegar frá en hæstv. stjórn hefir nú gert, eða skýrt annað en menn vissu áður. Á þessu getur auðvitað staðið þannig, að stjórnin sjái sjer ekki fært að gera ljósa grein fyrir þessu fyr en síðar. — Hæstvirtur forsætisráðherra sagði í ræðu sinni, að síst væri að undra, þótt vörur stjórnarinnar hefðu oft orðið dýrari en vörur hjá kaupmönnum, af þeirri ástæðu, að stjórnin hafi verið neydd til að útvega vörurnar, hvað sem það kostaði, hvort sem ferðir hefðu verið heppilegar eða ekki. Jeg get af gildum ástæðum ekki gert mig ánægðan með þessa skýringu. Því að það er engin stjórn svo bundin á hæl og hnakka, að hún verði að sætta sig við að sæta ókjörum fram yfir alla aðra. Svo að ef þetta á að skilja sem skýringu á málinu, þá er hún mjög ófullnægjandi. Annað mál er það, hvað þessi óhöpp og tafir snertir, er skipin urðu fyrir, að þau geta eðlilega hafa orðið þess valdandi, að stjórnin varð að selja dýrara en kaupmenn. En þá kemur aftur sú spurning, hvort stjórnin hafi verið nógu vel vakandi um að koma í veg fyrir, að þessar tafir yrðu. Og þá ekki síst sú spurning, hvort stjórnin hafi ekki vanrækt að senda góðan og vel hæfan mann til Ameríku í tæka tíð, mann, sem vel væri treystandi til að ráða fram úr þeim vandamálum, sem fyrir kynnu að koma. Hæstv. forsætisráðherra gat þess í ræðu sinni, þessu til skýringar, að fyrst eftir að stjórnin kom til valda hefði þörfin ekki virst brýn til að senda mann þegar í stað. Mjer þykir óneitanlega dálítið einkennilegt, að svo hafi ekki verið; að minsta kosti er mjer kunnugt um það, að margir voru þeir úti í frá, sem töldu ekki annað fært. Það getur að vísu vel átt sjer stað, að menn hefðu verið ófúsir á að fara með þessu skipi, ekki þótt það nógu trygt. En mjer þykir líklegt, að úr því að stjórnin taldi ekki þörf á að senda manninn, þá hafi hún ekki heldur falað neinn til fararinnar. Hvað þessu skipi viðkemur þá hefir verið flutt bæði fólk og vörur með því.

Hæstv. forsætisráðherra gat þess enn fremur, að ekki væri hlaupið að því að finna vel hæfan mann með litlum fyrirvara. Og má vel vera að svo sje, enda bendir reynsla sú, sem fengist hefir af framkvæmdum stjórnarinnar, á þetta. En samt sem áður býst jeg við, að engum blandist hugur um, að henni hefir farist þetta óhöndulega, því að þetta er mál, sem bæði mjer og fleirum er fullkunnugt, hvernig ráðning og sending þessara manna hefir tekist. Hæstv. forsætisráðherra gaf það enn fremur í skyn, að öll stjórnin hefði verið sammála um það að senda þann, sem fyrst var sendur. Hvað sem hæstv. forsætisráðherra segir um það, þá er víst, að þetta var með hangandi hendi gert, og fjarri því, að væri með góðum vilja allra hæstv. ráðherra, eftir því, sem m. a. mátti ráða af málgögnum þeirra, er rjeðust óþyrmilega á þennan mann, einmitt er hann var kominn í þessa sendiför. Þessi maður, sem hjer er um að ræða, mun ekki heldur hafa farið með nema hálft umboð, en að mestu fyrir stjórn Eimskipafjelagsins.

Enn fremur talaði hæstv. forsætisráðherra um það, að ekki hefðu Norðurlönd orðið fyrri til en við að senda menn til Ameríku, en gat þess þó jafnframt, að dálítið öðru máli væri að gegna með þau, þar sem þau hefðu þar sína föstu »diplomata«. Og það er einmitt þetta, sem gerir allan muninn og veldur því, að þessa var ekki jafnmikil þörf fyrir þá eins og okkur. Og ef við hefðum sjeð um þetta í tíma, hefðum við samt staðið betur að vígi en þær. Þær áttu alt undir högg að sækja, þar sem þær stóðu í beinu sambandi við þá þjóð, sem bandamenn vildu hindra að fengju nokkuð. Við aftur á móti áttum hjer óskylt mál við hinar þjóðirnar og vorum lausir allra slíkra mála.

Við vorum útilokaðir með öllu frá meginlandinu og alveg loku fyrir það skotið, að nokkuð yrði flutt hjeðan út, að minsta kosti til Þýskalands. Hæstv. forsætisráðh. sagði, að svo liti út, sem þessi 2. sendimaður væri nú farinn að gera gagn. Jeg hjelt, satt að segja, að nú væri kominn enn nýr maður, eða 3. sendimaðurinn, Vestur-Íslendingur, sem hjer var á ferðinni heima og fenginn var til að fara með okkar mál fyrir vestan haf. Jeg geri ráð fyrir, að hann hafi verið tekinn til starfa þegar vart fór að verða við þessa góðu reynslu sendimannsins. (Atvinnumálaráðh.: O-nei.) Getur verið, að stjórnin sje ekki farin að nota krafta hans enn. En ekki hefir þessum mikla árangri hins sendimannsins verið haldið mikið á lofti meðal almennings. Annars hygg jeg, að stjórnin ætlist til, að honum sje þakkað eitthvað af því, sem núverandi umboðsmaður Eimskipafjelagsins fær áorkað vestra, en ekki verður það gert með rjettu.

Þá sagði sami hæstv. ráðh., að annað skipið, sem jeg mintist á, hefði verið fullfermt. Getur skeð, að það hafi verið svo; getur líka verið, að eitthvað hafi á það vantað. En þótt það hafi haft fullfermi, þá vantaði þó ekki lítið í »Gullfoss«, af því að hann treystist ekki að liggja og bíða, hver veit hve lengi. Er það þá ekki einmitt það, sem vantar, að hafa duglegan mann þarna fyrir vestan, til þess að greiða fyrir því, að skipin þurfi ekki að bíða eftir farminum. »Gullfoss« var þó að minsta kosti búinn að bíða alllanga hríð í þetta skifti.

Þá er það um skipakaupin, hvort þau hafi verið mjög hagstæð. Jeg skal ekki um það deila, enda verður það að bíða síðari tíma að kveða upp fullnaðardóm í því máli. Það sannar ekkert, þótt svo kunni að hafa verið, að stjórnin hafi átt kost á að selja skipin síðar fyrir meira verð en hún keypti. Það sem um er að ræða er það, hvort ekki hefði mátt fá hagstæðari kaup, ef stjórnin hefði ekki spilað þeim úr hendi sjer fyrir handvömm. Hæstv. forsætisráðh. játaði, að spursmál gæti verið um það, hvort ekki hefði dregist óþarflega lengi að festa kaup á skipi. Hann hjelt þó, að svo hefði ekki verið. Sömuleiðis sagði hann ekki forsvaranlegt að veita manni fult umboð til skipakaupa strax. Margir munu þó líta svo á, að það hefði verið það hyggilegasta, eins og á stóð, því að framkvæmdunum lá á að hraða. Maðurinn, sem til þess var fenginn að útvega skipin, var vel til þess fær, og var því sjálfsagt að fela honum að festa kaupin. Hann hafði fullkomlega eins mikið vit á því og betri aðstöðu heldur en stjórnin, sem sat heima og hafði engin gögn í höndum.

Þá kemur að aðfinsluatriðunum inn á við. Jeg tók sem dæmi vörutalninguna síðast í maí í vor, þar sem öllum var gert að skyldu að gefa upp, hvað þeir ættu mikið af nauðsynjavöru. Hæstv. forsætisráðh. gat þess, að þessi talning hefði verið gerð meðan hann var ytra. En hann taldi það hyggilega ráðstöfun, til þess að komast að því, hvað menn ættu af þessum vörutegundum, svo að hægt væri að taka af þeim, sem hefðu ofmikið af þeim milli handa. Það má líklega segja, að þetta sje skýring, og mjer þykir vænt um, að hún er komin fram, því að hún brýtur í beran bága við allan eðlilegan tilgang þessara athafna og við frásögn hinna ráðherranna. Þeir gátu ekki um, að neitt annað hefði verið með þessu meint heldur en að fá að vita, hvað menn þyrftu. Jeg tel vafalaust, að þessi skýring sje rjettari, því að varla gat nokkrum heilvita manni dottið í hug, að þær birgðir væru nú til af matvöru úti um sveitir, að ástæða væri til að taka af mönnum það, sem þeir hafa. Það stóð auðvitað nær að birgja þá upp, sem lítið áttu eða ekkert. Því gat komið til mála að láta sveitarstjórnir grenslast eftir því, hvað þurfa mundi í sveit hverri af nauðsynjavörum, svo að stjórnin gæti fylt í skörðin. Það kom nú samt í ljós, að margir þrjóskuðust við að gefa upp, hvað þeir ættu, eins og krafist var, en svöruðu í þess stað spurningunni þannig, hvað þeir þyrftu, því að þeir voru hræddir við, að tekið yrði af þeim, ef þeir áttu eitthvað. Þeir álitu sjer ekki skylt að svara þeirri spurningu, fyr en sendir voru til þeirra menn, með ærnum tilkostnaði víða, svo að þeir sáu sjer nauðugan einn kost að tína til það, sem þeir áttu. Það er þá líka komið á daginn, að öllum þessum kostnaði er fleygt í sjóinn, því að enginn veit til þess, að neitt sje úr skýrslunum unnið, eða þær hafi verið til nokkurs notaðar.

Jeg hefi heyrt sagt, að einn maður, sem ekki hafði annað að gera, hafi verið settur í að vinna eitthvað úr þeim. En hagstofan hefir ekkert við þær átt, þótt hún ætti að sjálfsögða að vinna þetta verk, í stað þess að fleygja því, eftirlitslaust með öllu, sem atvinnu í einhvern einn mann. Ef nú gert er ráð fyrir, að það hafi verið tilgangurinn með þessari talningu að komast að því, hvað þyrfti að sjá mönnum fyrir miklu, þá verð jeg að segja, að þetta var óhæfileg krókaleið og hlaut að leiða til misskilnings, í stað þess, sem beinast lá fyrir, að spyrja menn um, hvað þeir þyrftu. — Jeg sje, að hæstv. ráðherrar hrista höfuðin. Jeg býst við, að þeir verði að hrista höfuðin lengi, áður en þeir geti sýnt fram á nokkurn tilgang með þessari vörutalningu, eða ýmsum öðrum athöfnum stjórnarinnar. Ekki þurftu þeir nú að óttast, að menn úti um land færu að panta meira af landssjóðsvörunni en þeir nauðsynlega þurftu með, þar sem hún var svo rándýr, að kaupmenn gátu selt vörur lægra verði. En þótt menn hefðu gefið upp, að þeir þyrftu meira en landsstjórnin mundi vilja skamta þeim, og ekki verið hægt að útvega vörur, til að fullnægja öllum pöntunum, þá var ekki annar vandinn en að jafna því niður, sem fjekst, hlutfallslega eftir því, sem um var beðið. Þessu var hægt að slá föstu þegar í byrjun og spara allan kostnað, ergelsi og fyrirhöfn, sem þessi talning hefir haft í för með sjer.

Þá gat hæstv. forsætisráðherra þess, að stjórninni hefði verið það ljóst frá byrjun, að skilja þyrfti verslunina frá stjórnarráðinu, og að byrjað hefði verið á því, eða skilnaðurinn jafnvel verið fullger áður en þing kom saman, eða áður en þingsályktunartill. bjargráðanefndar kom fram. Já, þeir fullyrða þetta, og þýðir auðvitað ekki að stæla um það, en einkennilegt má það heita, að ekkert orð skyldi fara af skiftingunni fyr en seint og síðar meir. Og jeg vil jafnvel spyrja, hvort þessi skilnaður sje þá fullkominn. Er ekki enn sama rekagáttin í verslunarmálunum og áður var upp á 2. skrifstofu stjórnarráðsins og þaðan til ráðherra, ef það þykir þá taka því að fara til hans? Jeg spyr að þessu, af því að jeg hefi ástæðu til að ætla, að þessi lofaði aðskilnaður sje ekki meir en svo fullkominn.

Þá sagði hæstv. forsætisráðherra, og hinir ráðherrarnir hafa tekið í sama strenginn, að stjórnin hefði greitt fyrir kaupmönnum. Ja — þeir orðuðu svar sitt einmitt á þessa leið. Aðfinslur mínar við stjórnina viðvíkjandi kaupmönnunum gengur ekki beinlínis, að minsta kosti ekki eingöngu, út á þetta. Jeg fann að því, að stjórnin hefði ekki haft næga samvinnu við kaupmenn og ekki leitað ráða til þeirra í vöruútvegunum og verslunarráðstöfunum, eins og vera bar; svo sagði jeg, að menn úti í frá hefðu getað ímyndað sjer, að kaupmenn væru illa sjeðir hjá stjórninni, ef dæma skyldi eftir því, hvernig eitt af málgögnum stjórnarinnar kemur fram gagnvart þeim; — málgagn hæstv. atvinnumálaráðherra. Hæstv. forsætisráðherra svarar fullum fetum fyrir hönd allrar stjórnarinnar, og efast jeg ekki um, að samkomulagið sje svo gott hjá landsstjórninni, að einn geti tekið svari allra. En jeg skil ekki í því, að hæstv. forsætisráðherra geti tekið á sig ábyrgð á því, sem fellur eingöngu til annarshvors hinna, eins og t. d, þetta, að málgagn eins hluta stjórnarinnar skuli úthúða kaupmönnunum, í sömu andránni sem stjórnin þykist greiða fyrir þeim á alla lund.

Þá kem jeg að því atriðinu, að stjórnin hafi ekki sjeð landinu fyrir tekjum. Jeg hefi engu að bæta við það, sem jeg sagði áður. Hæstv. fjármálaráðh. (B. K.) sagði, að stjórnin hefði ekki viljað leggja nýja skatta og tolla á þjóðina, og hann sagði enn fremur, að fálmið væri meira hjá þinginu en stjórninni. Það má kannske segja, að stjórnin losni við að fálma, ef hún snertir ekki á nokkrum sköpuðum hlut. Það heyrðist hjer um daginn rödd frá landsstjórninni til einnar nefndar í þinginu, að hún væri ekki nógu dugleg að útvega tekjur. Fjárhagsnefnd, sem þetta var meint til, hefir fulla ástæðu til að vísa þessari ákæru heim til stjórnarinnar aftur. Henni (þ. e. stjórninni) ber í 1. röð að sjá landinu fyrir þeim tekjustofnum, sem það þarf á að halda, nema hún segi þá hreint og beint, að hún ætlist til, að landið lifi á lánum.

Þá kem jeg að starfsmönnum verslunarinnar. Hæstv. forsætisráðherra kvað það leitt, að versluninni gæti ekki haldist á forstöðumönnum sínum, Hann er mjer þá samdóma í þessu, en jeg drap líka á það, hvort ráðlegt væri að setja ungan mann í þessa stöðu, sem með öllu er óreyndur á þessu sviði. Með þessu er ekkert ilt sagt um manninn. Jeg varpaði þessu að eins fram til þess að fá skýringar þessu viðvíkjandi. En jeg hefi enga skýringu fengið, aðra en þá frá öðrum ráðherra, að hann mundi ekki hafa hærri laun en fyrirrennari hans. En hvað sem þessu líður þá er það ekki lítill ábyrgðarhluti fyrir stjórnina að taka ungan mann og óreyndan, í stað þess að reyna að fá þektan mann og æfðan kaupsýslumann til að veita svona miklu fyrirtæki forstöðu. Svo vil jeg í annan stað spyrja, hvort það er satt, að sami maður sje fastráðinn sem aðstoðarmaður í hagstofunni frá 1. september. Ef svo er, þá er það næsta einkennilegt, að honum skuli vera ætlað að hafa svona umfangsmikil störf í hjáverkum. Ekki er líklegt, að búið sje að undirskrifa þessa ráðningu eða skipun, en flogið hefir fyrir, að þetta sje fastráðið. Eða er það meiningin, að hann eigi að eins að vera við verslunina um stundarsakir, og að honum sje ætlað að lenda í hagstofunni von bráðar? Þetta er atriði, sem mjer finst full ástæða til að spyrja um og beiðast skýringar á; það er svo mikilvægt, hvað forsjá landsverslunarinnar snertir.

Hæstv. fjármálaráðh. (B K) komst í svari sínu að líkri niðurstöðu og forsætisráðherra. Sumt leiddi hann hjá sjer og kvað sjer óviðkomandi, sumu væri búið að svara og sumu mundu verða svarað af öðrum. Jeg á hjer tal við alla landsstjórnina, og er erfitt að greina um hvert einstakt atriði, hvort fremur heyrir undir einn en annan, nema rjett í einstöku atriðum, sem eru svo auðsæ, að enginn vandi er að vita, hvar eiga heima, svo sem

t. d. ábyrgðin á því, sem ósvinn málgögn einhverra af ráðherrunum flytja.

Hæstv. fjármálaráðherra (B. K ) gaf þá upplýsingu, að fjárlögin væru ekki nema að nokkru leyti hans verk. Að þeim væri unnið jöfnum höndum á öllum skrifstofunum. Jeg verð að segja, að þetta sje næsta einkennileg upplýsing. Þá er varla hægt að furða sig á því, þótt menn geri fyrirspurnir til stjórnarinnar í einu lagi, fyrst að störf ráðherranna eru svo saman rugluð, að hvergi verður í sundur greitt. En það er varla að ófyrirsynju að minnast á fjárlögin. Stjórnin virðist hafa gert áætlanir sínar með það eitt fyrir augum að láta tekjur og gjöld fallast í faðma, og til þess að geta haldið því varð stjórnin sumstaðar að sleppa auðsæjum, nauðsynlegum og óhjákvæmilegum útgjaldaliðum.

Hæstv. ráðherra (B. K.) sagði, að ekki hefði verið hægt að sjá það fyrir í febr., þegar frv. var samið, hve miklu þyrfti til að kosta. En jeg verð að segja, að það þurfti ekki mikla þekkingu til að sjá það þá, að óhætt væri að áætla talsvert hærra. Stjórnin á því ekkert hrós skilið fyrir það, þótt hún gæti að nafninu til látið tekjur og gjöld standast á, eins og í garðinn var búið. Hæstv. ráðherra (B. K.) komst svo að orði, að ef þingið hefði haldið sömu stefnu og stjórnin, þá hefði fjármálunum verið borgið. Jeg mótmæli því algerlega. Það hefði blátt áfram verið óforsvaranlegt af þinginu að ganga jafngálauslega frá fjárlögunum eins og hæstv. stjórn leyfði sjer að gera.

Þá vil jeg fara nokkrum orðum um einstök atriði hjá sama ráðherra. Hann mintist á töf skipanna í Vesturheimi, benti á, að norsk skip hefðu jafnvel tafist þar lengur á sama tíma. Jeg veit, að þetta muni vera satt, en jeg hefi þegar gert grein fyrir því, að okkar aðstaða var alt önnur, og að það hefði átt að vera auðsóttara að greiða fyrir okkar skipum en öðrum. Að leita varð til Lundúna með ýmsa samninga, stafaði auðvitað af því, að umboðsmann vantaði vestra. (Fjármálaráðherra: Hann var þá kominn vestur). Já, en okkur kom saman um það, að sendimennirnir vestra, þegar þeir voru þangað komnir, hefðu ekki altaf verið sem heppilegastir og stundum haft heldur lítið umboð.

Um vörutalninguna þarf jeg ekki fleiru að svara. Það hefi jeg þegar gert.

Þá kem jeg að nokkrum atriðum hjá hæstvirtum atvinnumálaráðherra. Hann kvaðst vera sammála hinum báðum. Það er ekki þakkavert, þótt hann fari ekki að brjóta niður varnir meðstjórnarmanna sinna. Jeg bjóst ekki við öðru og áfellist hann ekki fyrir það. En þetta var óþörf athugasemd og lítil skýring á því, sem um var spurt. En öðru svaraði hann ekki neinu, af aðfinslunum út á við. Um aðfinslurnar inn á við var hann líka fáorður. Um vörutalninguna fórust honum líkt orð og fjármálaráðherra. Hann kvað einmitt stjórnina hafa orðið að grenslast eftir því, hvað menn ættu, til þess að geta ákveðið, hvað menn þyrftu. En það er eins og jeg sagði, að þar skaut landsstjórnin yfir markið, því að engin hætta var á, að menn færu að hlaða að sjer landssjóðsvöru fyrir það verð, sem á henni er. Hæstv. atvinnumálaráðherra kvað skilnað verslunarinnar frá stjórnarráðinu kominn á fastan fót. Jeg hefi nú spurt frekar út í það og bíð eftir svari. Hann kannaðist ekki við, að stjórnin hefði lagt kaupmannastjettina í einelti. Jeg dreg enga dul á, að jeg átti með þessu helst við málgagn hæstv. atvinnumálaráðh., Tímann. Það er erfitt að skilja í framkomu þess, þegar þess er gætt, að stjórnin þarf einmitt á sama tíma svo mjög að halda á góðri samvinnu við kaupmenn. Þá mintist hann á setninguna í bankastjóraembættið, og kvað það ekki óvanalegt, að þannig væri að farið, en vísaði að öðru leyti til forsætisráðherra. Því verður varla neitað, að þessi aðferð er óvenjulega einkennileg, og flogið hefir fyrir, að því hafi farið fjarri, að stjórnin hafi öll verið sammála um þetta. En jeg vænti þess nú ekki, að hæstv. ráðherrar fari að »demonstrera« sundurlyndi sitt hjer. Þeir segjast auðvitað vera allir sammála. En því ljet hæstv. atvinnumálaráðherra ósvarað, hvaða »flokkur« hefði skipað honum heim í Ystafell, ef hann hefði ekki framkvæmt þessa bankastjórasetningu! Hæstv. atvinnumálaráðherra fullyrti, að enginn úr stjórninni ritaði í blöð. Það getur nú verið nokkuð djörf fullyrðing. En það er ekki aðalatriðið. Jeg átti við það, að eitthvert blað er stofnað beinlínis til að styðja stjórnina. Ráðherrann á ef til vill í því, er stjórnarverndari þess. Þá er full ástæða til að tala um það, sem í því stendur, ef það er hneykslanlegt fyrir landsstjórnina, sem varðar okkur alla. Ef það t. d. ófrægir og níðir niður í augum almennings þá menn, sem stjórnin hefir gert að trúnaðarmönnum sínum, þá er það varla samboðið almennu velsæmi. Þá fanst hæstv. atvinnumálaráðherra ekki við eigandi að minnast á forstöðumann landsverslunarinnar hjer. Jeg tel einmitt sjálfsagt, að það sje gert, og verð að álíta, að þessi skoðun hans byggist á því, að honum er ekki kunnugt um, hvað borið hefir verið fram á þingum áður. Hann er yfirleitt helsti ókunnugur og óvanur öllu hjer. Jeg skal nú ekki orðlengja þetta meir, en jeg verð að taka það skýrt fram að lokum, að mjer þykir stjórnin ekki hafa gert sjerlega hreint fyrir sínum dyrum.