14.09.1917
Efri deild: 57. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1853 í B-deild Alþingistíðinda. (1800)

54. mál, húsmæðraskóli á Norðurlandi

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Það er ekki mikill munur á frv. þessu nú frá því sem það var, er það fór frá þessari háttv. deild, eins og háttv. 1. þm. Rang. (E. P.) hefir tekið fram.

Hjer í deildinni var það ekki talið frv. til fyrirstöðu, þó að svo væri til orða tekið, að skólinn skyldi standa við Eyjafjörð, og því var ekki mótmælt, að hann mætti standa við flutningabrautina, svo að hann gæti verið í sveit.

Orðin »í grend við Akureyri« eru teygjanleg. Þau þurfa ekki að merkja það, að skólinn eigi að vera heimangönguskóli frá Akureyri Og jeg vil lýsa yfir því, að jeg geng að frv. með þeim skilningi, að skólinn megi, eftir frumvarpinu, standa á einhverri sveitajörð upp með Eyjafjarðarflutningabrautinni — svo framarlega sem þessari skoðun minni verður eigi andmælt hjer — og þurfi ekki að vera heimangönguskóli frá Akureyri, og að sveitabúskapur verði rekinn í sambandi við hann; vitna jeg þar til skoðunar minnar, sem jeg ljet áður í ljós um þetta mál, þegar frv. var hjer fyr til umr.