18.07.1917
Efri deild: 10. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1854 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)

63. mál, bæjarstjórn á Akureyri

Flm. (Magnús Kristjánsson):

Lögin um bæjarstjórn á Akureyri, sem með frv. þessu er farið fram á að breyta, hafa nú staðið milli 30 og 40 ár. Smámsaman hafa komið í ljós ýmsir agnúar á þeim, sem valda því, að breyting á þeim er nú orðin alveg nauðsynleg.

1. gr. frv. gerir ráð fyrir, að í stað bæjarfógeta komi bæjarstjóri, sem bæjarstjórnin kýs til þriggja ára í senn. Þetta fyrirkomulag er nú orðið talið nauðsynlegt vegna þess, að störf þau, sem sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu hefir að gegna, eru orðin svo umfangsmikil, að forstaða bæjarmálanna getur ekki lengur samrýmst við þau.

Eins og kunnugt er þá er sú stefna orðin mjög rík hjá löggjafarvaldinu að líta svo á, að sýslumannsembættin sjeu einskonar hítir, sem hægt sje að fleygja öllu í, og ekki væri unt að offylla. Hvert þingið eftir annað er hlaðið á sýslumennina nýjum og nýjum störfum, og það svo mjög, að í erfiðustu sýslunum má heita, að frágangssök sje að anna því öllu, svo að vel fari.

Eyjafjarðarsýsla með Akureyrarbæ er nú einhver erfiðasta sýslan, svo erfið, að einn maður getur ekki annað öllu því, er á honum hvílir, jafnvel þótt hann verji miklu fje til aðstoðar við embættið, og því er það, að Akureyrarbær óskar eftir þessari breytingu, þótt vitanlegt sje, að það hafi mikinn kostnað í för með sjer fyrir bæjarfjelagið.

Það hefði verið eðlilegast, að landsstjórnin hefði lagt fyrir Alþingi frumvarp til laga um að aðskilja bæjarfógetaembættið á Akureyri og sýslumannsembættið, og þá hefði landssjóður greitt kaup bæjarfógetans, og bærinn getað látið sjer þá breytingu lynda og sparað þennan kostnað.

Það hefir verið leitað undirtekta landsstjórnarinnar um slíka breytingu, en undirtektirnar hafa verið þannig, að bærinn telur tilgangslaust að reyna að fara þá leið.

Jeg vænti þess, að mál þetta, sem er sjermál Akureyrarbæjar, fái fram að ganga hjá háttv. deild, enda hygg jeg, að í frv. felist engin ákvæði, sem eru hættuleg frá almennu sjónarmiði.

Mál þetta hefir verið vel undirbúið, svo að jeg tel ekki brýna þörf á að vísa því til nefndar. Vilji háttv. þingmenn, að því sje til nefndar vísað, þá tel jeg að best fari á, að því sje vísað til allsherjarnefndar, en ekki geri jeg það að minni tillögu. Jeg vænti þess, að þótt sú nefnd sje önnum hlaðin, þá skili hún málinu, ef því verður til hennar vísað, svo snemma, að það nái fram að ganga á þinginu.