03.09.1917
Neðri deild: 50. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1860 í B-deild Alþingistíðinda. (1815)
63. mál, bæjarstjórn á Akureyri
Frsm. (Einar Árnason):
Jeg gat þess við 2. umr., að allsherjarnefndin hefði í hyggju að koma með brtt við 3. umr. og orða 4. gr. dálítið öðruvísi, svo að hún yrði í samræmi við 2. gr. Þessi brtt. er nú komin hjer, á þgskj. 752, og nefndin leyfir sjer að leggja til, að háttv. deild samþykki hana.