23.08.1917
Neðri deild: 41. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1877 í B-deild Alþingistíðinda. (1858)
66. mál, gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri
Frsm. (Pjetur Þórðarson):
Það er að eins örstutt athugasemd. Það var ein ástæða, sem jeg ætlaði mjer að minnast á, en var búinn að gleyma, en háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) minti mig á hana. Hún er sú, að þjóðjarðirnar í Arnarstapaumboði liggja allar á tiltölulega litlu svæði, og því er líklegt, að umboðsmaðurinn verði sæmilega haldinn af starfi sínu. Það er einmitt þvert á móti í Múlasýslu, því að þar liggja þjóðeignirnar á víð og dreif, og því erfitt að hafa eftirlit með þeim, svo að varla verður tilvinnandi fyrir nokkurn umboðsmann að hafa það fyrir þá borgun, sem ætluð er. Umsjónin er sem sje svo afarerfið, eins og núverandi umboðsmaður tók fram. En þessi lítils háttar aðdróttun, sem hann kom með til hreppstjóranna, að þeir myndu standa illa að vígi gagnvart nágrönnum sínum, vegna ofnáins kunningsskapar, er svo ósennileg, að jeg býst ekki við, að hún muni hafa mikil áhrif á úrslit þessa máls.
Jeg hygg, að það muni eiga alstaðar jafnt við, ef það á annað borð á nokkursstaðar við, þetta um ósjálfstæði hreppstjóra. Síst ætti það að vera meira í Múlasýslum en annarsstaðar. Annars tek jeg það fram enn, að jeg álít ekki eyðandi tíma í það að vera að deila um þetta mál.