14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í B-deild Alþingistíðinda. (187)

2. mál, fjáraukalög 1914 og 1915

Fjármálaráðherra (B. K.):

Jeg skal ekki um segja, hvað mikið háttv. þingdm. hafa fræðst við hina löngu ræðu háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), býst þó ekki við, að það hafi verið mikið, og því síður, að þeim hafi fundist hún mjög sannfærandi. Jeg vona, að skýringar þær, sem jeg hefi komið með, verði teknar til greina, og að háttv. deild greiði atkvæði um till. stjórnarinnar samkvæmt þeim. Mjer dettur ekki í hug að svara ræðu háttv. frsm. (G. Sv.) orði til orðs, og vona jeg, að hvorki hann nje háttv. deild misvirði það við mig. Ræðan var auðsjáanlega ekta prókúratorræða, og mjer þykir það ekki sama að eltast við slíkar ræður. Jeg vil leitast við að taka þingmálin alvalegar en svo, að jeg vilji beita nokkuð líkum vopnum þeim, sem háttv. frsm. (G. Sv.) beitir á stjórnina.

Háttv. frsm. (G. Sv.) bar það á stjórnina, að hún hefði ekki efnt það, sem hún hefði lofað í svörum sínum við athugasemdir yfirskoðunarmanna landsreikninganna 1914. Gagnvart þessu skal jeg taka það fram, að þegar stjórnin svaraði athugasemdum yfirskoðunarmanna, gat hvorki hún nje þeir vitað hvernig fara mundi um ýmsar greiðslur, sem koma áttu niður á bæði árin, síðara árið, með því aths. fyrir það ár voru ókomnar. Það bæði gat komið fyrir og kom fyrir, að þótt goldið hefði verið meira fyrra árið en til var tekið í fjárlögunum að greiða skyldi það ár, þá gat það sparast síðara árið eða meira til, svo að eigi yrði borgað meira bæði árin en upphæð sú, sem fjárlögin ákváðu að greiða skyldi. Með því nú að stjórnin álítur, að ekki sje ástæða til að leita aukafjárveitinga á upphæðum, sem afgreiddar eru annað árið, ef þær sparast hitt árið, þá gat hún ekki skilyrðislaust sagt um, hverjar af slíkum ofgreiðslum hún myndi taka upp í fjáraukalög fyrir árin 1914 og 1915.

En til að sýna, hvað rjett háttv. frsm. (G. Sv.) fer með og hve vandlega hann muni hafa lesið, leyfi jeg mjer að benda á tvent, sem hann segir, að stjórnin hafi lofað að taka upp í fjáraukalög 1915; það er um aukafjárveiting til rannsókna símleiða. Þar bið jeg háttv. þingdm. að fletta upp svari stjórnarinnar undir 65. tölulið í landsreikningunum, og athuga þar, hve rjett háttv. frsm. (G. Sv.) fer með málið (G. Sv.: Það hefir þegar verið viðurkent, að hjer sje blandað málum).

Hitt er undir 104 tölulið í svörunum við landsreikninginn 1915. Þar segir háttv. frsm. (G. Sv.), að stjórnin hafi lofað að leita aukafjárveitingar á 1687 kr. 7 a., en í svarinu stendur: »Alls mun eiga að leita aukafjárveitingar fyrir kr. 1687,03, sem yfirskoðunarmenn fyrir sitt leyti væntanlega stuðla til að gert verði«. Hjer liggur ekki fyrir neitt loforð frá stjórnarinnar hendi um að taka upphæð þessa upp í fjáraukalög. Þvert á móti. Það er leitt að þurfa að reka annað eins og þetta ofan í háttv. frsm. (G. Sv.). (G Sv.: Það er leitt, að hæstv. fjármálaráðherra skuli ekki geta tekið rjett eftir því, sem sagt er, og hart að þurfa að búa undir slíkri stjórn). Yfir höfuð eru athugasemdir háttv. frms. (G. Sv.) þannig vaxnar, að jeg vona, að hann sjái að sjer og gæti sín betur síðar, þegar hann ætlar að fara að dæma um gerðir annara. Það er eðlilegt, að háttv. frsm. (G. Sv.) geti yfirsjest í dómum sínum, því að hann getur naumast verið fullkunnugur öllum málavöxtum, en hitt er óvarlegt af honum að fara með jafnmiklar fullyrðingar, sem hann hefir gert; hætt við að slík vopn sljóvgist fljótt, ef þeim er oft beitt.

Háttv. frsm. (G. Sv.) segir, að allar umframgreiðslur eigi að taka upp í fjáraukalög. En hvorki hefir hv. nefnd sjálf fylgt þeirri reglu út í æsar, nje heldur virðast yfirskoðunarmenn landsreikninganna vera fastir á þeirri skoðun. Þeir hafa nú, meira að segja, ekki fylgt sömu reglunni alstaðar við yfirskoðun landsreikninganna 1914 og 1915. Af umframgreiðslum til spítalanna í Laugarnesi og á Kleppi ætlast þeir til, að 1914 komi í fjáraukalög að eins það, sem eytt var umfram veitingu til skemtana eða í Laugarnesi kr. 192,77 af kr. 4485,39, sem alls var eytt umfram veitingu, og á Kleppi kr. 172,60 af kr. 5531,55. Við endurskoðunina á landsreikningnum 1915 leggja þeir aftur á móti til, að öll umframgreiðslan sje tekin upp í fjáraukalög. Þetta sýnir það — og þar er jeg samdóma háttv. frsm. (G. Sv.), að nauðsyn er að setja hjer einhverjar fastar reglur; og þar tel jeg þá eina reglu rjetta, að taka ekki neitt í þau, sem áður er fyrir veitingum í fjárlögunum, og eigi heldur umframgreiðslur á þeim upphæðum, sem altaf hljóta að verða áætlunarupphæðir; hitt er að veita sama fjeð tvisvar. Þó geri jeg það ekki að kappsmáli, hvorri aðferðinni þingið vill fylgja, hitt höfuðatriðið, að eftir föstum reglum sje farið. Þá kæmi ekki fram annað eins nefndarálit og þetta, og það er mikið unnið fyrir þingið að vera laust við slíkt.

Háttv. frsm. (G. Sv.) vill gera lítið úr áliti háyfirdómara Kristjáns Jónssonar á máli þessu. Það geri jeg ekki. Jeg tel hann einn hinn skarpasta lögfræðing vorn, og hann gat enga sjerstaka tilhneigingu haft til að verja þessa skoðun; því að það voru ekki hans eigin fjárlög, sem þá var um að ræða, fremur en að þessi eru mín.

Háttv. frsm. (G. Sv.) talaði um, að jeg hefði verið ókurteis í fyrri ræðu minni. Víst var það ekki tilætlun mín. Jeg ætlaði ekki að segja stygðaryrði til nokkurs manns, heldur að eins bláberan sannleikann, og vona, að mjer hafi tekist það.

Háttv. frsm. (G. Sv.) sagði, að jeg hefði átt að vera bljúgur í andsvörum mínum. Má vera, að honum hafi sýnst svo; jeg veit ekki, hve mikillar auðmýktar hann krefst af þeim, sem við hann þurfa að ræða; jeg læt aðra dæma um það, hvor okkar hafi talað í sæmilegri eða bljúgari tón. Jeg leiði það alveg hjá mjer að fara að rekja í sundur allan þann vef, er háttv. frsm. (G Sv.) var að vefa áðan. Mótmæli því að eins, að stjórnin hafi verið svo óvandvirk, að hún hafi ekki getað tekið upphæðir rjettar upp í frv. sitt.

Jeg vona nú, að málið sje við umræðurnar orðið svo skýrt, að nú sje óhætt að ganga til atkvæða um það, og er þó sannast að segja, að háttv. frsm. (G. Sv.) hefir lítið gert til að skýra það fyrir háttv. deild. (G. Sv.: En mikið til að skýra það fyrir stjórninni).