18.08.1917
Neðri deild: 37. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1894 í B-deild Alþingistíðinda. (1898)
91. mál, manntal í Reykjavík
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Frv. gengur út á að taka af prestunum í Reykjavík alt starf við skýrslugerð út af manntali. Þetta fyrirkomulag, sem nú er, er mjög óheppilegt; bæjarfógetinn tekur manntalið, og prestarnir fá það síðan til þess að tína úr, hver sína safnaðarmeðlimi, en oft hefir skakkað hjá þeim, og verða því skýrslur prófasta og biskups rangar. Þetta hefir komið í ljós meðal annars á þann hátt, að samanlögð tala safnaðarmeðlima prestanna allra er töluvert lægri en íbúatalan eftir manntali bæjarfógeta. Hagstofan hefir boðist til að taka við þessum skýrslugerðum, gegn því að fá afrit af manntalinu. Frv. gengur út á, að hagstofan taki við þessum störfum, og bæjarsjóður Reykjavíkur borgi eftirritið af manntalinu. Það er bæði einfaldara og betra en núverandi fyrirkomulag.