17.08.1917
Neðri deild: 36. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1908 í B-deild Alþingistíðinda. (1936)

106. mál, breyting á tilskipun og fátækralögum

Forsætisráðherra (J. M.):

Þetta frv. hefir við nokkur rök að styðjast Það bætir úr ákvæðum, sem hafa orðið nokkuð hörð prestum, sem fyrir þeim hafa orðið. Það er samt ekki rjett hugsun að hegna presti, sem hefir gefið saman hjón, sem standa í sveitarskuld, með því að láta hann borga skuldina. Þetta er ekki rjett hugsuð hegning við brotinu. Eftir hugsunarhætti lögfræðinga er hitt miklu rjettara, að presturinn bæti þann skaða, sem verður af broti því, sem hann hefir gert sig sekan í. Annars lít jeg svo á, að það væri hættulaust að nema úr gildi það ákvæði, að ekki megi gefa saman hjón, sem standa í sveitarskuld. Ef sveitarstyrkurinn getur ekki lengur hindrað hjónaband, þá fellur þetta mál niður, sem nú liggur fyrir. En vilji menn ekki fara svo langt, þá tel jeg rjettast, að sekt liggi við brotinu.

Jeg legg til, að málinu verði vísað til mentamálanefndar. Það er þess vert, að það verði athugað og gangi fram í einhverri mynd.