31.08.1917
Neðri deild: 48. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1910 í B-deild Alþingistíðinda. (1939)
106. mál, breyting á tilskipun og fátækralögum
Einar Arnórsson:
Út af því, sem háttv. 1. þm. Eyf. (St. St.) sagði, að hann teldi vafasamt, hvort þessi brtt. gæti komið til umr. hjer, þá ætla jeg mjer ekki að tala um málið fyr en jeg hefi heyrt úrskurð hæstv. forseta um það.