31.08.1917
Neðri deild: 48. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1910 í B-deild Alþingistíðinda. (1940)
106. mál, breyting á tilskipun og fátækralögum
Forseti:
Með því að brtt. á þgskj. 720 felur í sjer ákvæði, er snertir það atriði, sem um er rætt í frv. því, er hjer liggur fyrir og komið er frá háttv. Ed., jafnvel þótt brtt. sje að miklum mun víðtækari og yfirgripsmeiri en frv., þá tel jeg rjett, að hún geti komist að.