11.09.1917
Efri deild: 54. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1921 í B-deild Alþingistíðinda. (1952)

106. mál, breyting á tilskipun og fátækralögum

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Þetta frv. er í raun og veru nýtt frv., bæði að nafni og efni, og hefir það verið soðið saman í háttv. Nd. upp úr frv. því, er hjer var samþ., um ábyrgð fyrir að gefa saman hjón, og mentamálanefnd hafði til meðferðar.

Með því að frv. er svo mjög breytt, vil jeg leggja til, að því verði vísað til þeirrar nefndar og umr. frestað.