01.08.1917
Efri deild: 19. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1934 í B-deild Alþingistíðinda. (1978)

128. mál, stofnun landsbanka

Flm. (Magnús Torfason):

Jeg skal þegar í upphafi geta þess, að villa hefir slæðst inn í greinargerð frv. Þar stendur orðið »óskeikulli«, í staðinn fyrir »ókvikulli«. Jeg ætla mjer ekki þá dul að skapa óskeikula bankastjórn með frv. þessu. Það mætti ef til vill segja, að bankinn hafi um sinn átt óskeikulan bankastjóra, en það er mikill munur á því og að öll bankastjórnin sje óskeikul.

Jeg hafði búist við, að frv. í þessa átt kæmi frá hæstv. stjórn, og hafði talsverða ástæðu til þess, þar sem mjer er kunnugt um, að mál þetta hefir verið tekið til athugunar af einum af hæstv. ráðherrum.

En í síðustu forvöð þótti okkur flm. rjett að sjá um, að málið kæmist inn á þing, og höfum við þess vegna gerst flutnm. þess nú.

Aukaþingið í vetur sem leið lagði mesta áhersluna á það að skapa sterka stjórn, sem hefði nægilegt þingfylgi til hverskonar framkvæmda. Jeg geri það ekki að umtalsefni nú, hver árangur hafi af því orðið. En það var fleira, sem vakti fyrir aukaþinginu, en það að skapa sterka stjórn. Það lagði líka áherslu á, að stjórnin sæi um, að nægur fjárafli væri í landinu. Hvað hæstv. stjórn hefir gert til þess er mjer ókunnugt um. Að minsta kosti hefir hún ekki skýrt frá afrekum sínum í því efni.

En allir munu á einu máli um það, að aldrei hefir verið brýnni þörf en nú á því að sjá fjárhag landsins borgið, Atvinnuvegirnir leika á reiðiskjálfi og búast má við, að sambandi við önnur ríki verði slitið þegar minst varir. Á slíkum tímum er það lífsnauðsyn, að nóg fje sje til í landinu sjálfu.

Ein af aðalskyldum þjóðbankans okkar, Landsbankans, er nú einmitt að styðja stjórnina til að afla þessa fjár, og er þá vert að athuga, hvernig bankinn eða stjórn hans stendur að vígi.

Eins og mönnum mun vera kunnugt má heita, að bankastjórnin sje á hrakhólma stödd. Má næstum segja, að hún hangi á bláþræði, þar sem báðir bankastjórarnir eru settir og sömuleiðis annar gæslustjórinn. Stjórnendur þessir eru því ekki annað en dægurflugur og störf þeirra vitanlega ekki annað en dægurstörf; því að ganga má að því vísu, að menn þeir, sem settir eru að eins um stuttrar stundar sakir, láti hverjum degi nægja sína þjáning. Og ekki verður við því búist, að slík stjórn hafi þá festu, sem nauðsynleg er á jafnmiklum viðsjártímum og nú eru.

Ekki er heldur hægt að ætlast til þess, að slík stjórn eigi frumkvæði að ábyrgðarmiklum framtíðarráðstöfunum, þar sem hún getur ekki búist við að fá að ráða neinu um framkvæmdirnar og getur átt á hættu, að svo verði litið á, sem hún með því taki fram fyrir hendur eftirmanna sinna.

Af þessu öllu og sakir persónulegra atvika getur mönnum ekki dulist, að hjer þarf gagngerðra breytinga á stjórnarháttum bankans, ef þessu á að verða kipt í lag, svo að við verði hlítandi. En þótt bankastjórnin sæti fastari í sessi en hún gerir nú, þá er núgildandi fyrirkomulag samt sem áður alls óviðunandi.

Síðan 1914 hefir bankinn aukist mjög mikið, sem næst því þrefaldast. En eftir því sem störf bankans verða meiri og fleiri, eftir því verður erfiðara fyrir gæslustjórana að fylgjast með, menn, sem er ætlað að vinna þar að eins stuttan tíma á dag; þeir hljóta að missa það yfirlit yfir starfsemi bankans, sem nauðsynlegt er til þess að taka ákvarðanir til ýmsra framkvæmda. Þeir verða því deigir og ódjarfir til allra stórræða, og tillögur þeirra verða helst til þess að draga úr framkvæmdum; þeir verða íhaldsafl, jafnvel hreint og beint farg á alla framsókn bankans.

Þetta er ofureðlilegt, því að menn, sem ekki eru kunnugir starfinu, hljóta að hliðra sjer hjá því að taka á sig þunga ábyrgð, og því samviskusamari sem þeir eru, því þyngri verður þeim ábyrgðin.

Af öllu þessu tel jeg það ljóst, að fyrirkomulag það, sem nú er, sje alls ekki viðunanlegt.

Atvinnuvegir landsins verða stærri í broti með ári hverju. Það bólar þegar á nýjum atvinnuvegum, svo stórvöxnum, að oss hefir ekki órað fyrir öðru eins; þjóðin heimtar nýjar lánstofnanir, bæði fyrir landbúnaðinn og sjávaratvinnu manna. Útibúum fjölgar, og vjer erum í þann veginn að nema ný viðskiftalönd. Hjer eru því viðfangsefni bæði mörg og mikilvæg, sem þurfa undirbúnings við. Til þess þarf bankastjórn, sem er föst í rás, samhent og hefir fulla ábyrgð á hendi. En það liggur í augum uppi, að gæslustjórar geta ekki haft eins þunga ábyrgð á hendi eins og menn, sem eru þaulkunnugir störfum bankans í smáu sem stóru.

Okkur flutningsmönnum þótti rjett að koma fram með frv. óbreytt, eins og það var lagt fyrir þingið 1915.

Við vildum ekki grípa fram fyrir hendur nefndar þeirrar, sem væntanlega fjallar um málið, en munum fúsir á að taka til greina þær breytingar, sem hún kann að gera við frv. og til bóta horfa.

Að síðustu vil jeg geta þess, að ekki ber að skilja orð mín sem ákúrur til bankastjórnarinnar. Jeg get lýst yfir því, að jeg kann fullvel að meta þá valinkunnu heiðursmenn, sem nú stjórna bankanum.

Vona jeg svo, að háttv. deild taki máli þessu vel, og er það sannfæring mín, að ekki verði öllu þarfara verk unnið á þessu þingi en það að styrkja stjórn þessa banka.

Vil jeg svo gera það að till. minni, að frv. verði, að umr. lokinni, vísað til allsherjarnefndar.