15.08.1917
Efri deild: 31. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1947 í B-deild Alþingistíðinda. (1990)

128. mál, stofnun landsbanka

Frsm. (Magnús Torfason):

Í tilefni af fyrirspurn háttv. þm. Snæf. (H. St.) vil jeg fyrst taka það fram, að jeg er ekki í stjórninni og get því ekki svarað til þessa. En mjer hefir skilist, að sjálfsagt væri, að þessi nýi bankastjóri væri strax fastskipaður. Mjer hefir einnig skilist, að ekki sje hægt að svo stöddu að skipa menn í sæti bankastjóranna, og hafa bankastjórar því að eins verið settir.

Um kostnaðaraukann vil jeg taka það fram, að kostnaðurinn verður að miðast við stærð fyrirtækisins. Menn geta ekki ætlast til, að fyrirtæki, sem orðið er 6 sinnum stærra en það var fyrir nokkrum árum, þurfi ekki að greiða meira til stjórnar sinnar heldur en þá.