04.07.1917
Neðri deild: 2. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 33 í B-deild Alþingistíðinda. (2)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Fjármálaráðh. (B. K,):
Jeg vil leyfa mjer að gefa stutt yfirlit yfir fjárhaginn, eins og mjer virðist hann vera sem stendur.
Tekjurnar 1916 hafa til þessa reynst um kr. 3,237,052. Þær voru áætlaðar kr. 2,104,100. Mismunurinn á áætlun og innkomnu fje til þessa er því kr. 1,132,952.
Þessi tekjuafgangur, sem er æði mikill, liggur í því, að tekjurnar urðu á ýmsum liðum meiri en áætlað var. Þannig varð útflutningsgjald....... kr. 302,729
en það var áætlað ... — 210,000
Mismunur................kr. 92,729
Tóbakstollur reyndist. . . kr. 553,238
en var áætlaður . . .... — 500,000
Mismunur................... kr. 53,238
Kaffi- og sykurtollur varð kr. 366,956
en var áætlaður . . . — 325,000
Mismunur kr. 41,956
Símatekjur reyndust . . . kr. 359,023
en voru áætlaðar . . . — 195,000
Mismunur kr. 164,023
En langmest munar um verðhækkunartollinn, sem ekki var á áætlun. Hann mun hafa numið um kr. 524,484,00. Að vísu skal jeg taka það fram, að skýrslur hagstofunnar segja þessar tekjur dálítið hærri, en það liggur í því, að ekki var alt komið inn.
Svo eru enn ýmsir aðrir tekjuliðir, sem hafa farið fram úr áætlun, svo sem ábúðar- og lausafjárskattur, tekjuskattur, aukatekjur, erfðafjárskattur, vínfangatollur o. fl. Yfir höfuð hafa allir liðir farið fram úr áætlun, að undanteknum tveim, sem hafa reynst nokkru lægri en áætlað var. Vitagjald reyndist 6,297 kr. lægra en áætlað var, og endurgjald á öðrum fyrirframgreiðslum varð 3,498 kr. fyrir neðan áætlun.
Þá sný jeg mjer að gjaldaliðunum.
Útgjöldin 1916 hafa reynst
til þessa kr. 2,938,274
en þau voru áætluð.......— 2,248,084
Mismunur kr. 690,190
Þessi mikli mismunur liggur að mestu leyti í greiðslum samkvæmt lögum, sem ekki hafa verið teknar upp í fjárhagsáætlun. En að öðru leyti liggur hann í umframgreiðslum á ýmsum liðum, og er hraðskeytasambandið þar þyngst á metunum. Það hefir tekið með sjer kr. 43,338,79 umfram áætlun.
Eins og jeg tók fram áður hafa tekjurnar 1916
reynst . . ....................... kr. 3,237,052
en útgjöldin urðu . ....... — 2,938,274
Tekjuafgangurinn er þá ° kr. 298,778
Við það bætist bráðabirgðalán, sem landssjóður hefir lagt til landsverslunarinnar 1916
kr. 50,000
Afgangur ætti því að vera kr. 348,778
Talið er, að staðið hafi í landsversluninni frá
1914—15............................. kr. 449,333
Ef þar frá er dreginn tekjuhalli
á landsreikningum............... kr. 181,533
verða eftir . kr. 267,800
Tekjuafgangur þriggja síðastliðinna ára
mundi því nema.................. kr. 616,578
Ef hjer frá er dregin dýrtíðaruppbótin, sem veitt var á síðasta þingi og mun hafa numið um............. kr. 420,000
þá verður afgangurinn......... kr. 196,578
Þó að þessi útgjöld komi ekki á reikning fyr en 1917, tel jeg rjett að telja þau með útgjöldunum 1916, þegar verið er að ræða um fjárhaginn það ár.
Verði fjáraukalögin 1916—1917 samþykt með líkri upphæð og í þeim er nú, þá nema þau að frádregnu því, sem þegar er greitt, um 232,000 kr. Er þá tekjuafgangurinn fyllilega uppunninn og þó heldur kominn tekjuhalli, því að samkvæmt framansögðu kemur nú til að vanta um 36,000 kr. Annars er að svo stöddu alls ekki hægt að segja um fjárhaginn upp á hár, og liggur það meðal annars í slæmum samgöngum milli Íslands og Danmerkur, því að í Kaupmannahöfn fara fram ýmsar greiðslur, sem ekki er til fulls vitað um enn þá, hverju nema. Þessar greiðslur, og ef til vill einhverjar aðrar greiðslur, sem tilheyra árinu 1916, eru ekki komnar til reiknings enn, og svo getur má ske verið um einhverjar tekjur líka. En þó hygg jeg, að ekki geti verið um neinn verulegan tekjuhalla að ræða á þessum þrem síðastliðnu árum. Það, sem einkum gerir það örðugt, að segja um fjárhaginn upp á hár, er það, að landssjóðsversluninni hefir verið blandað saman við landsreikninginn, og hefir það valdið skekkjum og óvissu í reikningsfærslunni. En þetta liggur í því, að menn hafa í upphafi hugsað sjer, að landssjóðsverslunin yrði það lítilræði, að ekki myndi taka því að hafa sjerstaka reikningsfærslu fyrir hana. En nú hefir þessi verslun aukist að miklum mun, og hefir það, eins og jeg sagði áðan, valdið töluverðum ruglingi, að henni hefir verið blandað saman við landsreikninginn.
Eins og mönnum mun vera ljóst af framansögðu, þá er ekki hægt að byggja á tekjuafgangi umliðinna ára, þegar gengið verður frá fjárlögunum fyrir árin 1918—1919. Og ekki er heldur hægt að grípa til viðlagasjóðs, því að hann liggur ekki með handbært fje. Fjárlögin sjálf eru ekki nema brot af útgjöldunum, og verði nú þau stjórnarfrumvörp samþykt, sem hafa fjárútlát í för með sjer, verður einnig að taka tillit til þeirra, þegar endanlega verður gengið frá fjárlögunum.
Það þyrfti að vera regla, þegar þingið samþykkir lög, er baka landinu útgjöld, að gera áætlun um útgjöldin og taka upp í fjárlögin. Áætlunina er ekki að marka, nema öll vitanleg útgjöld sjeu þar talin.
Þótt nú sje ekki um tekjuafgang að ræða, og gjöldin sjeu eins mikil og verið hefir, þá vil jeg benda á, að eigi er svo að skilja, að allar greiðslur landssjóðs 1914—16 hafi orðið að eyðslufje. Get jeg bent á, til dæmis, tillag til Eimskipafjelagsins 100 þús. kr., og enn fremur framlag til Landsbankans 300 þús. kr., og til ýmissa sjóða allstórar upphæðir samkvæmt lögum.
Þá er að skýra frá verðbrjefaeign landssjóðs 31. des. 1916. Hún er þessi:
1. Í konunglegum ríkisskuldabrjefum............... kr. 315,000,00
2. Í bankavaxtabrjefum 2. fl. veðd............... — 110,000,00
3. Skuldabrjef fyrir lánum...............................— 1,435,726,00
4. Óveðbundin bankavaxtabrjef..................... — 1,011,300,00
Samtals kr. 2,872,026,00
Þar við bætast hlutir í
Eimskipafjelaginu 100 þús. kr. og í
Landsbankanum 300 þús. kr. — 400,000,00
Þetta verður samtals kr. 3,272,026,00
Þá eru skuldirnar 31. des. 1916.
Þær eru:
1. Ritsímalán frá 1908, að eftirstöðvum............. kr. 266,666,66
2. Lán frál909(bankavaxtabrjef) ...................... — 1,125,000,00
3. Lán frá 1912 (sömuleiðis bankavaxtabrjef) — 220,833,33
4. Lán frá 1912, tekið vegna sjerstakra útgjalda
(Reykjavíkurhöfn o. fl.)........................................ — 366,666,66
5. Ritsímalánið 1913........................................... — 474,496,65
6. Lán til loftskeyta, tekið 1916........................... — 100,000,00
Samtals kr. 2,553,663,30
Verðbrjefaeignin var þannig 31. des. 1916 kr. 718,362,70 fram yfir skuldir,
Við þessa arðbæru eign bætast svo aðrar arðbærar eignir landsins, svo sem:
Ritsíminn.............................................................kr. 2,312,754,00
Ræktunarsjóður...................................................— 462,000,00
Fiskveiðasjóður...................................................— 304,000,00
Landhelgissjóður.................................................— 84,388,00
o. fl.
Annars mun bráðabirgðayfirlit yfir tekjur og gjöld landssjóðs 1916 verða lagt fram á lestrarsal. Þar geta háttv. þm. kynt sjer það, og eins munu þeir geta fengið upplýsingar hjá stjórninni, ef breytingar verða á því. Því að það liggur í augum uppi, að yfirlit þetta er engin endanleg uppgerð. Það má einnig búast við, að tekjurnar 1917 verði minni en áætlað var, og vel getur svo farið, að tekjurnar 1918—19 verði minni en stjórnin gerði sjer vonir um, er hún samdi frumvarpið. Óvissan er svo mikil, að ómögulegt er að gera nokkra skynsamlega áætlun um tekjurnar og gjöldin. Þegar fjárlagafrumvarpið var samið, hafði stjórnin ekki átt kost á að sjá hag landsreikningsins fyrir árið 1916. Því ákvað stjórnin að þrengja sem mest útgjöldin og yfir höfuð spara sem mest.
Ef nú væri um friðartíma að ræða, yrði ekki annað sagt en að fjárhagurinn væri góður. En á ófriðartímum, eins og nú, stendur hann fullhöllum fæti og getur orðið þröngur, ef út af ber. Ekki þyrfti annað en að Danmörk kæmist í stríðið, því að þar er vort lánstraust. Viðlagasjóð höfum vjer að vísu allglæsilegan. En hann er að eins á pappírnum, en liggur ekki í handbæru fje, sem gripið verði til, ef á liggur. Og peningar vorir eru seðlar, sem hvergi eru gjaldgengir, nema innan lands, ef sambandið slitnar við Danmörku. Ef því eitthvað ber út af, verðum vjer að leita til annara þjóða um lán, sem geta orðið oss fulldýr, svo að jafnvel frelsi landsins verði að setja að veði. En slíkt kemur vonandi aldrei fyrir.
Þetta stafar nú ekki af fátækt, heldur af því, hvernig vjer komum eigum vorum og peningamálum fyrir. Ef vjer hefðum allan viðlagasjóðinn í handbæru fje, og mynt í stað seðla, gætum vjer flotið lengi.
Það er vandi að semja fjárlög á friðartímum, en enn meiri vandi er það á styrjaldartímum, eins og nú, þegar tekjurnar eru óvissar, en þarfirnar alstaðar. Á fyrri ára tekjuafgangi er ekki að byggja, eins og jeg hefi áður bent á, og því koma nú fjárlögin fram reikningshallalaus. Það getur vel verið, að stjórnin hafi ekki verið nógu varkár með að áætla tekjurnar, en langt er síðan áætlunin var gerð, og alt breytist daglega. Ráðuneytinu er það ljóst, að þarfirnar eru margar, og það sannar þarfir, sem þó ekki er hægt að uppfylla, eins og nú standa sakir. Menn verða að sætta sig við að bíða, þegar svona stendur á; það verða menn jafnvel að gera á friðartímum. Það er eðlilegt, að þarfirnar sjeu margar í landi er telja má ónumið land, en framleiðsluskilyrði takmarkalítil, ef ekki skortir fje. En það er eðlilega ekki hægt að koma stórstígum framkvæmdum á, nema með stórlánum, eða mjög auknum tollum og sköttum eða hvorutveggja.
Tekjuafgangur fjárlaganna er áætlaður um 6½ þús. kr. En jeg vil benda á, að á bls. 9 í 12. gr. 14. hefir læðst inn prentvilla. Þar stendur: Styrkur til sjúkrahúsa og sjúkraskýla 3000 kr., en á að vera 5000 kr. Tekjuafgangurinn lækkar því niður í um 2½ þús. kr.
Að öðru leyti vil jeg ekki fara út í einstök atriði fjárlagafrv., en vísa til athugasemdanna við það. Jeg geri ráð fyrir, að því verði vísað til fjárveitinganefndar og 1. umr. frestað.