24.08.1917
Efri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1962 í B-deild Alþingistíðinda. (2004)

128. mál, stofnun landsbanka

Frsm. (Magnús Torfason):

Það eru að eins fáein orð um 3. brtt., fyrri lið hennar, launin. Jeg get ekki fallið frá því, að 6000 kr. sje oflítið. Það er ekki mikill maður, sem getur ekki unnið sjer inn nema 6000 kr. á ári. Það er því ekki mikill hagur fyrir bankann að fá mann, sem getur ekki unnið sjer meira inn. Það lítur helst út fyrir, að ákveðin stefna sje ráðandi í þinginu, og hún er sú, að embættismenn landsins megi ekki auka kyn sitt, megi ekki vera barnamenn. Má sjálfsagt til sanns vegar færa, að enginn akkur sje í því, að afkvæmi þessara svo kölluðu landsómaga fjölgi um of.

Að því er þennan embættismann snertir, sem hjer ræðir um, þá hlýtur hann, og er nauðsynlegt, að umgangast hina efnaðri menn þjóðarinnar, kaupmenn, verslunarstjettina og hina stærri atvinnurekendur, en til þess að geta haldið virðingu sinni meðal þeirra verður hann að berast nokkuð á, og eitt er það, sem jeg vil sjerstaklega leggja áherslu á. Bankastjóra okkar verður að skoða sem nokkurskonar fulltrúa landsins gagnvart útlendum fjármálamönnum, og það eru menn, sem venjast ekki öðru en að þeir, sem eru fyrir slíkar stofnanir settir, sjeu svo sæmilega launaðir, að þeir beri ekki fátæktina utan á sjer.