05.09.1917
Neðri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1965 í B-deild Alþingistíðinda. (2010)

128. mál, stofnun landsbanka

Frsm. (Einar Árnason):

Landsbankinn hefir nú starfað í því nær þriðjung aldar. Hann var stofnaður af miklum vanefnum, bæði hvað fjárhag og þekkingu snerti; og af því mun það hafa stafað, að inn í fyrirkomulagið komust þegar í byrjun ýms óheppileg ákvæði, svo sem það að hafa seðlana óinnleysanlega.

Bankinn var einmitt stofnaður á mesta harðindakafla síðari hluta 19. aldar. Fátæktin krepti að á öllum sviðum, líka í Landsbankanum. Bankastjórinn hafði starfið að nokkru leyti í hjáverkum og hafði sárlítil laun. Afgreiðslan var ekki opin nema suma daga vikunnar, og var það til mikilla óþæginda fyrir viðskiftamenn bankans, einkum þá, er langt áttu til að sækja.

Þessi litli og fátæki banki varð að spara á allar hliðar. Þá var gæslustjórafyrirkomulagið sett á stofn — út úr neyð. Bankinn var þá ekki stærri en sumir sparisjóðir eru nú; og þinginu mun hafa fundist gæslustjórafyrirkomulagið ódýrt úrræði og um leið hagfelt til að skapa þinginu einskonar íhlutunarrjett um meðferð bankafjárins.

Eftir liðug 20 ár var bankastjórunum fjölgað. Þeir urðu 2. Gæslustjórunum var haldið fyrir því. Göllum þessa fyrirkomulags hefir verið rækilega lýst í umræðunum um þetta mál í Ed.

Skipulag það, er bankinn hefir átt við að búa síðan 1909, hefir, í einu orði sagt, verið kyrstöðufyrirkomulag. Tveir bankastjórar og tveir gæslustjórar jafnir að völdum og tign. Bankastjórnin varð með þessum hætti eins og sköpuð til að vera skift í 2 jafna hluta, og ef útkljá skyldi deilumál, þá reið aldurinn baggamuninn.

Ekkert fjelag, stórt eða lítið, skipar stjórn sína svo Og naumast þykir mjer líklegt, að nokkur nefnd í heiminum sje skipuð með þessum hætti. Landsbankinn rær þar sennilega einn á báti.

Gæslustjóraembættin hafa með hverju ári orðið þýðingarminni, eftir því sem starf bankans óx og viðskiftin urðu fjölbreyttari. Þeir vinna ekki nema stutta stund í bankanum á dag og verða að hafa það starf í hjáverkum. Geta þeir því tæplega orðið svo kunnugir bankarekstrinum, sem þörf er á, þar sem þeir hafa úrslitaatkvæði um stærstu mál bankans með bankastjórunum. Enn hefir kosning gæslustjóranna þann annmarka, að þar sem þeir eru þingvaldir, skipar tilviljunar meiri hluti þingsins embættin. Hlýtur þá stundum að fara svo, að flokksverðleikar ráði meiru um, hverjir verða fyrir kjöri, heldur en þekking á bankarekstri og atvinnumálum. Með þessum hætti leiðast flokkadeilurnar úr þinginu inn í bankann, og mun það naumast hafa heillaríkar afleiðingar.

Þess vegna er það mikil framför að losna við gæslustjóraskipulagið.

Sú ástæða, að bankinn, vegna fátæktar, geti ekki haft fullnægjandi stjórn, er nú horfin úr sögunni. Gróði bankans er nú farinn að skifta hundruðum þúsunda á ári, og gæti þó sennilega meiri verið með bættu fyrirkomulagi.

Kostnaðurinn við hina fyrirhuguðu breytingu, 4000 kr. á ári, er mjög lítilfjörlegur, ef um verulega umbót er að ræða. — Vil jeg leyfa mjer að víkja að því helsta í því efni.

Gæslustjórarnir hverfa úr sögunni. Hættan við pólitiska íhlutun um dagleg störf bankans minkar. Í stað gæslustjóranna kemur þriðji bankastjórinn. Einn af þeim verður jafnan lögfræðingur, og sparast bankanum við það alldýr lögfræðileg aðstoð, sem annars þyrfti að kaupa, og það eins þótt gæslustjórar væru.

Þegar bankastjórar eru orðnir 3, ræður afl atkvæða, og er þá horfið jafntefli það, sem nú er í stjórn bankans. Allar ákvarðanir verða greiðari, og um leið nokkur trygging fengin fyrir því, að bankinn geti komið atvinnuvegum landsins að góðu gagni. Myndi það margborga landinu þann litla kostnað, sem fjölgun bankastjóranna hefir í för með sjer.

Ekki verður heldur komist hjá að líta á, að þjóðin verður að gera miklu meiri kröfur til Landsbankans heldur en gerðar hafa verið hingað til. Nú, meðan stríðið stendur og öll þau vandræði, sem af því leiða, verða bankarnir báðir að vera bjargvættir landsins. Því styrkari, öruggari og framsýnni sem stjórnir þeirra eru, því meiri hjálp veita þeir landsstjórninni og þar með þjóðinni allri. Einmitt þessi ástæða hefir fremur en nokkur annað orðið til þess að afla þessu máli fylgis. Menn hafa viljað, að á þessum hættutímum væri meiri festa í stjórn Landsbankans heldur en unt er að búast við, ef mikinn hluta af stjórn bankans skipa settir menn.

Þegar friður er kominn á í heiminum, kalla að aðrar umbætur. Útibú Landsbankans eru ekki enn nema tvö. Þau hafa bæði gert mikið gagn. Sökum þeirra og útibúa Íslandsbanka hafa orðið stórmiklar framfarir í framleiðslu og verslun, þar sem þau hafa náð til. Það er því ekki nema eðlilegt, að fleiri hjeruð vilji verða þessara hlunninda aðnjótandi. Þess vegna fjölgar með hverju ári kröfunum um útibú frá Landsbankanum. Fyrir þessu þingi hafa legið 2 slíkar beiðnir, og það er vitanlegt, að varla er til það kjördæmi á landinu, sem ekki óskar eftir umbótum og framkvæmdum í þessu efni.

En þessi umbót er að miklu leyti komin undir því, að Landsbankinn hafi kröftuga og viljagóða stjórn; öll úrræðin hvíla á bankastjórninni.

Að vísu skal það játað, að það verður ekki sannað fyrirfram, að fleiri útibú verði stofnuð þó að gæslustjórar hverfi og bankastjórar verði 3. En það eru miklar líkur fyrir því, að heilbrigðara fyrirkomulag á stjórn bankans muni leiða af sjer meiri og betri framkvæmdir. Úrræðin fjölga, kyrstaðan minkar og þekking á högum almennings vex. Og á einu sviði mundi fjölgun bankastjóra beinlínis geta greitt fyrir fjölgun útibúa.

Á undanförnum árum hafa bankastjórar Landsbankans lítið gert að því að heimsækja útibúin, þótt þau sjeu ekki nema tvö. Og ástæðan hefir vafalaust verið sú, að þeir hafa ekki átt heimangengt frá aðalbankanum. Hins vegar mun einn bankastjóri Íslandsbanka heimsækja öll útibúin, sem sá banki hefir stofnað, að minsta kosti einu sinni á ári. Þetta er góð regla og verður væntanlega tekin upp í Landsbankanum, þegar stjórn hans er orðin jafnstarfhæf eins og stjórn Íslandsbanka.

Slíkt eftirlit er alveg bráðnauðsynlegt Og það er beinlínis ástæða til að ætla, að bankastjórn Landsbankans hafi verið ófús á að stofna fleiri útibú, af því að hún hafi ekki haft aðstöðu til nægilegs eftirlits með þeim. En með fjölgun bankastjóra hyrfi þessi ástæða úr sögunni. Þá gætu bankastjórarnir brugðið sjer í eftirlitsferðir til skiftis, og það þó að útibúin væru fleiri en 2 eða 3. Ættu þær ferðir að hafa töluverða þýðingu til að auka kynni bankastjórnarinnar á kjörum og atvinnuvegum þjóðarinnar.

Þá er hliðin út á við.

Samband Landsbankans við erlendar lánstofnanir hefir, að því er virðist, ekki verið svo fullkomið sem skyldi, og töluverð óánægja er í landinu út af sölu veðdeildarbrjefanna. Það verður að vera hlutverk Landsbankans að veita fjármagni inn í landið. En til þess þarf einn af bankastjórunum að geta farið til útlanda við og við, án þess að daglegum störfum bankans sje komið í óefni fyrir það. Virðist svo, sem slík ferðalög muni auðveldari, ef bankastjórar verða þrír, í stað tveggja.

Að síðustu er ein kvöð, sem óhjákvæmilega verður að leggja á Landsbankann. Það er að aðstoða landsstjórnina í fjármálum út á við. — Eins og öllum er kunnugt er landið nú, vegna ýmiskonar dýrtíðarráðstafana, komið í töluverðar skuldir, bæði við bankana hjer og við erlenda banka. Og ef stríðið hættir ekki áður langt líður, má búast við, að þær skuldir fari vaxandi. Mun þá fara svo, að landið þarf á komandi árum að standa í erfiðum fjárreiðum út á við. Hingað til mun stjórnin hafa annast þessi fjármál sjálf. En til lengdar hlýtur það að verða miklum erfiðleikum bundið, einkum ef stjórnarskifti verða tíð, eins og á undanförnum árum. Getur þá svo farið, að nauðsynlega festu vanti í fjármálunum út á við. En ef Landsbankanum væri stjórnað af helstu fjármálamönnum þjóðarinnar, eins og verða mun í framtíðinni, ef þjóðin leggur nægilega áherslu á úrlausn þessa máls, þá ætti sá af bankastjórunum, sem sjerstaklega annast erlendu viðskiftin, að vera sjálfsagður ráðunautur landsstjórnarinnar, að því er kemur til landslána erlendis. Mætti þá búast við, að sá bankastjóri yrði stundum að bregða sjer til útlanda í erindum landsstjórnarinnar. Verður sú nauðsyn ein af mörgum til að styðja að framgangi þessa máls, eins og það kemur frá háttv. Ed.

Eins og nál. sýnir hefir nefndin athugað brtt. þær, sem fram eru komnar á þgskj. 674, og er hún öll sammála um að leggja á móti þeim. En þar sem jeg býst við, að hv. flm. þeirra (B. K.) taki til máls og skýri þær, mun jeg ekki að svo komnu taka þær til athugunar.