05.09.1917
Neðri deild: 52. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1986 í B-deild Alþingistíðinda. (2013)
128. mál, stofnun landsbanka
Einar Jónsson:
Jeg hefi áður látið í ljós þá skoðun mína í þingræðu, að hjer á landi væri þrennskonar vald sterkast, sem sje landsstjórnin, þingið og bankarnir. Það mun nú vera orðin föst venja hjer, að stjórnin fái sinn »eldhúsdag« í þinginu. Og þingið hefir líka sinn »eldhúsdag« í umræðum manna út á við. Mjer finst því ekki illa til fallið, að sama sje látið ganga yfir bankann, þegar verið er að ræða um breytingar á lögum hans. Jeg mun því koma hjer með ýmsar aðfinslur á rekstri bankans, sem eru bygðar á nákvæmri íhugun.
Mjer þykir leiðinlegt að sjá, að háttv. 1. þm. G.-K. (B. K.) er ekki viðstaddur. Verð jeg því að hætta við að minnast á ýms atriði, sem jeg mundi annars hafa gert. Að vísu býst jeg við, að háttv. þm. (B. K.) hafi sömu aðferð og háttv. þm. Dala. (B. J.), þegar hann flýr af hólmi, að láta einhvern skrifa upp það, sem jeg hefi sagt.
Jeg þykist vita, að háttv. 1. þm. G.-K. (B. K.) hafl lesið bók, sem heitir »Starfsskrá Íslands«. Þar er skýrt frá því, bæði með orðum og tölum, hverjir eru starfsmenn bankans og hvernig þeir eru launaðir. Í launakjörunum finst mjer kenna hlutdrægni og órjettlætis, og vil jeg því minnast lítið eitt á það.
Jeg hefi tekið eftir því, að menn, sem hafa starfað þar alt frá 1904, hafa ekki hærri laun en þeir, sem hafa verið teknir í bankann nú á síðasta ári, þótt þeir kunni til allra starfa, en hinir til fárra eða engra. Eins og allir sjá þá er þetta ekki rjettlátt á neinn hátt. Að öðru leyti er þannig háttað störfum í bankanum, að húsbændavaldið, sem kemur frá bankastjórninni, er ekki rjettilega eða sanngjarnlega um hönd haft við starfsmennina. Þess vegna tel jeg heppilegra að bæta við þriðja bankastjóranum, eins og nú er talað um, og sjá, hvort það gangi ekki betur.
Háttv. 1. þm. G.-K. (B. K.) hefir spurt um, hvernig færi, ef húsbóndi mætti ekki sjálfur ráða hjú sín. Þá er því til að svara, að hann er ekki húsbóndi í bankanum, heldur að eins ráðsmaður.
Það er áreiðanlegt, að margt hefir farið öfugt og aflaga í stjórn bankans. Jeg tel því rjett að breyta til og afnema þessar »bitlingatoppfígúrur«, sem nefndar eru gæslustjórar. Ef bankinn fær duglegan lögfræðing í sína þjónustu, sem hefir fulla ábyrgð, þá hygg jeg, að ráðast mundi bót á þeirri »lausung«, sem nú á sjer stað í bankastjórninni. Að minsta kosti er það víst út af fyrir sig, að helmingur af fje bankans stendur í kjördæmi háttv. þm. (B. K.) og í Reykjavík. En þegar svo maður ofan úr sveit kemur með trygga ábyrgð á smávíxli, þá er honum neitað. Jeg kalla það trygga ábyrgð fyrir einum 100 kr., þegar 2 góðir bændur úr Rangárvallasýslu skrifa á víxil, annar sem samþykkjandi, en hinn sem útgefandi. En það er ekki horft í að kasta mörgum þúsundum, jafnvel hundruðum þúsunda, í hús hjer í bænum.
Þá er það enn fremur ámælisvert, hvernig sami háttv. þm. (B. K.) hagaði sjer í lóðarkaupum og bankabyggingarmálinu, þegar bankinn brann. Jeg hygg, að það eyðist jafnmikið fje í húsaleigu hjá bankanum á nokkrum árum eins og þyrfti til að byggja nýtt hús. Þetta væri hægt að sanna, og allir vita, að þetta er bæði satt og rjett. Þá er það enn fremur kunnugt, að þegar þræta var um það, hvar bankinn átti að standa, þá var það háttv. 1. þm.
G.-K. (B. K.), sem var þar þröskuldur í vegi bankans, og á hann litlar þakkir skilið fyrir það.
Jeg býst nú við, að háttv. þingmenn kunni að segja, að þetta komi málefninu ekki beinlínis við, en þótt svo sje, þá finst mjer ekki illa til fallið, að á þetta sje minst.
Meining mín var auk þessa að minnast talsvert á brtt. hv. þm. (B. K.), en nú hefir hann tekið þær aftur, svo að jeg sje ekki, að það komi að neinu gagni. Tvent er það enn þá, sem jeg vildi minna hv. þm. (B. K.) á. Það er þá fyrst það, að menn úti á landi eru farnir að sjá, að þessi kyrstaða, sem hann lætur bankann standa í, er alt annað en til bóta. Háttv. þm. (B. K.) legst á móti öllu, sem miðar til stórframfara í landinu, svo sem brúabyggingum o. fl. o.fl., að ógleymdu einhverju stærsta þjóðþrifamáli, sem hjer hefir verið á döfinni, nefnilega járnbrautarmálinu. Hann hefir tekið þá afstöðu til þessa máls, sem líklega verður seint
ráðin bót á. Það er eins og háttv. þm. (B. K.) vilji vera algerlega einráður um, í hvað peningar eru lagðir. Og slíkt er alt annað en heppilegt, þegar um bankastjóra er að ræða. Jeg segi þetta ekki af því, að mjer sje persónulega illa við . hv. þm. (B. K.); það er öðru nær. Að eins álít jeg, að hann sje betur settur annarsstaðar en sem bankastjóri, því að jeg tel eflaust völ á öðrum miklu hæfari mönnum til þess starfa. (Forseti: Þetta er ekki til umr. Ræðumaður er ámintur um að halda sjer við málefnið). Hæstv. forseti segir, að þetta sje ekki til umr. hjer, ja, það er nú svo hvert mál, sem það er virt. En nú hefi jeg lokið mjer af með þessa eldhúsræðu yfir bankastjóranum, sem jeg tel engu síður nauðsynlega en aðrar eldhúsræður.
Jeg sje, að hv. 1. þm. G.-K. (B. K.) er ekki enn þá viðstaddur, svo að jeg læt hjer staðar numið; mundi annars hafa talað lengur yfir bankastjórastarfsemi hans. En jeg mun sýna það með atkvæði mínu, að jeg fellst á þetta frv., sem hjer liggur fyrir.