07.09.1917
Neðri deild: 54. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2003 í B-deild Alþingistíðinda. (2020)
128. mál, stofnun landsbanka
Björn Kristjánsson:
Við 2. umr. hafði jeg ekki við hendina skilríki, sem þurfti, til þess að hrekja til fullnustu eitt atriði í ræðu háttv. frsm. (E. Árna.). Hann hjelt því fram, að slík kyrstaða hefði verið í viðskiftum Landsbankans og störfum að undanförnu, að fyrir þá sök þyrfti að fjölga bankastjórunum, svo að bót yrði ráðin á þessu. Jeg hafði þá ekki við höndina tölur þær, er mótmælalaust sýna, á hve litlum rökum þessi staðhæfing háttv. þm.
(E. Árna.) er bygð. En nú hefi jeg þær, og skal jeg leyfa mjer að skýra frá þeim, svo að sjá megi, hvar sannleikurinn er í þessu máli.
Eins og háttv. þingdm. mun kunnugt sendi Landsbankastjórnin öllum alþingismönnum skýrslu um Landsbankann og hag hans árið 1915. Aftan við reikning bankans var prentuð tafla, sem sýndi framþróun bankans frá því að hann var stofnaður og til ársloka 1915. Af því að jeg tel sennilegt, að háttv. 2. þm. Eyf. (E. Árna.) hafi eigi kynt sjer töflu þessa, skal jeg nú af nýju rifja upp höfuðatriðin úr henni og bæta við samskonar yfirliti yfir árið 1916. Jeg læt mjer þó nægja að sýna í yfirliti þessu vöxt og viðgang bankans frá því að jeg kom að honum, 1. jan. 1916, og til ársloka 1916, svo að sjá megi, á hve miklum rökum það er bygt að vera að tala um kyrstöðu.
Yfirlitið lítur þannig út:
Lán og víxlar 31. des.
1916 kr. 14959144,00
Lán og víxlar 31.des.
1909 — 9955414,00
Mismunur kr. 5003730,00
Lánin hafa því vaxið á þessum 7 árum að meðaltali um nálega 715000 kr. á ári. Við þetta bætist svo, að annar banki starfar við hliðina á Landsbankanum, banki, sem sjálfsagt hefir lánað ekki minna fje út á þessum tíma en Landsbankinn. Þegar á þetta er litið, má það efasamt telja, að holt hefði verið eða heillavænlegt fyrir jafnfámenna þjóð og ekki auðugri en Íslendingar eru, að meira hefði verið lánað út á þessum árum en gert hefir verið.
Á hlaupareikningi stóðu
31. des. 1916 . . . kr. 1237073,00
Á hlaupareikningi stóðu
31. des. 1909 ... kr. 760322,00
Mismunur kr. 476751,00
Umsetning bankans var
1916 ...... kr. 100759210,00
Umsetning bankans var
1909 — 36190854,00
Mismunur kr. 64568356,00
Varasjóður var 31. des.
1916 — 1328794,00
Varasjóður var 31. des.
1909 — 706283,00
Mismunur kr. 622511,00
Auk þessa hefir á þessum 7 árum verið strikað út af ónýtum lánum um 300000 kr., svo að í raun rjettri er þessi 7 ára gróði samtals rúm 900000 kr.
Sparisjóðsfjeð var 31.
des. 1916 . . . . kr. 8821798,00
Sparisjóðsfjeð var 31.
des. 1909 . . . . — 3023172,00
Mismunur kr. 5798626,00
Þetta er nú kyrstaðan, sem háttv. þm. (E. Árna.) er að tala um. Þessar tölur verða ekki rengdar, og eru miklu ábyggilegri en tölur þær, sem óhlutvandir skuggasveinar lauma að þeim, sem þeir hafa ánetjað, tölur, sem þeir hafa tekið eftir sínum heimildum og á þann veg, sem þeim hefir þótt sjer sjálfum best henta.
Jeg hygg, að ráðlegast hefði verið fyrir háttv. frsm. (E. Árna.) að kynna sjer málið hjá mjer, sem, eins og vita má, er því gagnkunnugur. En því miður virðist hann hafa leitað fræðslu annarsstaðar og þar sem síður skyldi.
Jeg ber virðingu fyrir gáfum bænda, og hefi komist að raun um, að hjer á þingi sitja margir gáfaðir bændur. Jeg ber líka virðingu fyrir þekkingu þeirra á þeirra eigin sviði. En nokkurn skugga hlýtur að bera á þessa virðingu, þegar þeir fara að fást við efni, sem þeir, eftir hlutarins eðli, hljóta að bera fremur lítið skyn á. Jeg hefi haft þá reglu hjer á þingi að beitast ekki fyrir þeim málum, sem jeg hefi fundið að jeg hefi ekki haft næga þekkingu á,
t. d. búnaðarmálum; um þau hefi jeg viljað láta bændur fjalla sem mest, því að jeg veit, að þar hafa þeir meiri þekkingu og reynslu til brunns að bera; þar hefi jeg látið mjer nægja að kynna mjer málin eftir því, sem jeg hefi haft föng á, og leita upplýsinga þar, sem jeg hefi ætlað, að þær mætti ábyggilegastar fá, og greitt síðan atkvæði eftir því, sem jeg hefi haft best vit á. Þesskonar mál geri jeg ekki að kappsmáli, og gerist eðlilega ekki forvígismaður þeirra; jeg vil ekki eiga það á hættu að spilla góðu máli fyrir þekkingarskort á því. Þessi regla hefir mjer vel gefist, og óskandi væri, að sem flestir vildu fylgja henni.
Það eru bændur, sem ætla að gera frv. þetta að lögum; þeir eru flestir hjer í deild og ráða mestu. En því gæti jeg trúað, að þeir sæju síðar, að þeir hefðu farið helst til geyst í þessu máli; jeg get trúað því, að þá er þeir koma aftur undir hin heilögu áhrif sveitakyrðarinnar og fjallaloftsins okkar, þá muni þeir átta sig á því, að þeir hafi oftreyst viti sínu og fortölum annara.
Háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) segir, að annar bankastjórinn hafi verið fylgjandi frv. 1915. Jeg verð að svara þessu því, að um það er mjer ekki kunnugt, að svo hafi verið. Jeg get að sjálfsögðu ekki um það sagt, hvort hann hafi látið einhver slík orð falla við háttv. þm.
(E. A.); en þó veit jeg ekki betur en að öll bankastjórnin væri þá á móti því frv., og skal jeg skýra frá því, að bankastjórnin hafði þá undirbúið frv. um breyting á bankalögunum og ætlaðist til, að það yrði lagt fyrir þingið. Höfuðefni þess var: 1. að skipun bókara og gjaldkera og frávikning skyldi að öllu leyti lögð í hendur bankastjórnar. 2. að bankastjórninni skyldi heimilt að fjölga bókurum og gjaldkerum við bankann eftir þörfum og ákveða laun þeirra. 3. að þóknun sú, sem gæslustjórar fengju fyrir eftirlitið með störfum bankans og veðdeildar, skyldi hækkuð og skyldustarfstími þeirra lengdur. Tillögurnar í þessu frv. bankastjórnarinnar ganga fullkomlega í berhögg við frv. það, sem nú liggur fyrir háttv. deild. Meðbankastjóri minn var þeim fullkomlega samþykkur, og getur því ekki verið um að ræða, að hann hafi þá verið á annari skoðun.
Þegar kom á þing 1915, mætti mjer frv., sem stjórnin bar fram, og því gat jeg ekki flutt frv. bankastjórnarinnar. Þegar frv. stjórnarinnar var komið fram, þá lagði jeg það fyrir bankastjórnina og bar það undir hana, hvernig taka skyldi í það, og skal jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp útskrift úr einkagerðabók bankastjóra Landsbankans, og hljóðar hún þannig:
»Mánudaginn 12. júlí 1915, kl. 4, kom bankastjórnin á fund í stofu bankastjórnarinnar í Nýja pósthúsinu, til að ræða um frumvarp til laga um breyting á lögum nr. 12, 9. júlí 1909, um breyting á lögum um stofnun Landsbanka, 18. sept. 1885, m. m.
Mál þetta hefir ekki verið borið undir bankastjórnina af landsstjórnarinnar hendi. Sem stendur virðist frv. þetta óþarft og að efni til annars eðlis en bankastjórnin mundi hafa lagt til, ef það hefði verið borið undir hana. Hins vegar hafði bankastjórnin þegar samið frv. um, meðal annars, að vald það, sem ráðherra nú hefir til þess að skipa og afsetja bókara og gjaldkera, væri lagt í hendur bankastjórninni einni, og eru það tillögur bankastjórnarinnar, að svo verði gert.
Fundi slitið.
Björn Kristjánsson. Björn Sigurðsson. Jón Gunnarsson. Vilhj. Briem«.
Eins og sjá má af þessu leggur öll bankastjórnin einróma móti frv. því, sem hjer á að samþykkja í dag; og jeg veit ekki betur en að skoðun hennar sje óbreytt þann dag í dag. Að vísu hafa orðið mannaskifti í einu sæti í bankastjórninni, prófessor Eiríkur Briem komið í staðinn fyrir Vilhjálm Briem. En eftir viðtali við Eirík Briem veit jeg ekki betur en að hann sje sömu skoðunar um þetta mál sem hinir í bankastjórninni. Jeg hefi viljað, að fundargerð bankastjórnarinnar kæmi fram í ræðu minni, svo að almenningi gæfist kostur á að sjá, að frv. þetta fer þvert á móti vilja og ályktun bankastjórnarinnar.
Skal jeg svo ekki fjölyrða um málið; jeg veit, að forlög þess eru þegar ákveðin, og tek þeim með rósemd. En jeg taldi það skyldu mína að skýra frá því, sem jeg hefi nú gert, svo að menn gengju ekki gruflandi að því, hvað hjer á að gera, og það bið jeg háttv. þingdm. að athuga vandlega nú, er þeir greiða atkv. um frv. þetta í dag.