04.08.1917
Efri deild: 22. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2012 í B-deild Alþingistíðinda. (2026)
139. mál, útmælingar lóða
Flm. (Kristinn Daníelsson):
Sjávarútvegsnefnd hefir leyft sjer að koma fram með þetta litla frv.
Það er nýmæli, sem í felst tillaga um breyting á lögum frá 13. mars 1891, um að fá útmældar lóðir í kaupstöðum og á löggiltum kauptúnum.
Samkvæmt lögunum er að eins hægt að fá útmældar lóðir í verslunarstöðum, en nefndin vildi einnig ná til að fá lóðir útmældar, þótt utan kauptúna væri, t. d. í veiðistöðum, hvort sem væri til sjávarútgerðar, verslunar eða iðnaðar. Nefndin vildi einnig taka með iðnað, þótt hún væri aðallega að hugsa um sjávarútveginn, því að iðnaður er í lögunum nefndur, þótt ekki sje heimilað að taka eignarnámi lóðir, sem ætlaðar eru fyrir iðnað, og virtist því nefndinni eftir atvikum rjett að taka hann með. Að öðru leyti vil jeg vísa til greinargerðar þeirrar, er frv. fylgir.
Þá stendur frv. í nánu sambandi við frv. það, sem samþykt var um notkun hafna. Það er nefnilega gagnslaust að hafa reglugerð um notkun hafna nema sjeð sje um að hafa nægilegar lóðir á landi til þess að geta notað höfnina.
Jeg hygg, að ekki sje fleira við þetta, er útskýringa þurfi. Vona jeg, að háttv. deild veiti þessu máli sömu vinsamlegu viðtökurnar og frv. um notkun hafna.