11.09.1917
Neðri deild: 57. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2047 í B-deild Alþingistíðinda. (2065)

174. mál, rekstur loftskeytastöðva á Íslandi

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Mál þetta þarf ekki langrar framsögu við. Frv. er borið fram af samgöngumálanefnd Ed., og hefir samvinnunefnd samgöngumála beggja deilda tekið það á arma sína. Frv. er upphaflega komið frá landssímastjórninni, og hafa að eins verið gerðar á því orðabreytingar. Nefndirnar telja sjálfsagt, að það eigi að verða að lögum. Ákvæði þessa frv. eru í samræmi við samskonar ákvæði annarsstaðar. Þessara ákvæða er nú orðin þörf hjer á landi, þar sem nú eru að rísa hjer upp þráðlausar firðviðskiftastöðvar. Verður Ísland, ef slík lagafyrirmæli eru sett hjer sem þetta frv., sjálfstæður aðili í þessu efni, »internationalt« sjeð, en ekki að neinu leyti undirgefið sambandsþjóð vorri, Dönum, sem ella yrði, þar sem þeir kæmu fram fyrir vora hönd. Verður það að teljast vinningur, að vjer ákvörðum um þetta sjálfir.

Vænti jeg, að þetta mál fái að ganga hindrunarlaust í gegnum þessa deild, eins og gegnum Ed. Engin ástæða er til að senda það til nefndar, þar sem það er komið frá nefnd.