14.08.1917
Efri deild: 30. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2072 í B-deild Alþingistíðinda. (2117)
90. mál, hafnargerð í Þorlákshöfn
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Jeg finn ástæðu til að geta þess, að orð mín áttu ekki að skiljast á þann veg, að jeg óskaði þess, að ráðuneytið væri sem mest bundið að öllu, heldur á þann veg, að jeg vildi, að óskir og vilji þingsins kæmi ljóslega fram í till. þess. En það er ekki hægt að segja, að svo sje í till. háttv. Nd. Það liggur í augum uppi, og orðum mínum áður í þá átt hefir ekki verið mótmælt með neinum rökum.
Háttv. 2. landsk. þm. (S. E.) mintist á, að tvennskonar rannsókn þyrfti að fara fram. En hví má ekki byrja á hinu smærra og rannsaka það? Ef menn verða einhvern tíma svo stórhuga að vilja byggja hafskipahöfn þar, þá geta menn rannsakað það síðar, ef líst, og get jeg því ekki sjeð, að stjórnin þurfi að láta framkvæma hvorttveggja nú, enda lítur ekki út fyrir það, eftir till. háttv. Nd., að stjórnin eigi að hugsa neitt um það, eins og nú stendur, enda getur þingið síðar bætt við áætlun um stærri höfn.