03.08.1917
Neðri deild: 24. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2076 í B-deild Alþingistíðinda. (2126)
101. mál, stofnun og slit hjúskapar
Flm. (Einar Arnórsson):
Aðalástæðan fyrir þessari till. mun vera sú, að mörgum hafa þótt ýmsir ágallar vera á gildandi löggjöf um afstöðu foreldra til barna, einkum svonefndra óskírgetinna barna til föður og föðurættar. Hefir orðið hreyfing meðal ýmsra kvenna um þetta mál, og hafa þær snúið sjer til háttv. meðflm. míns (G. Sv.), sem er í góðu áliti hjá kvenþjóðinni; leiddi þetta til þess, að við höfum borið fram till. á þgskj. 149. En við nánari athugun, og í samráði við háttv. meðflm. minn (G. Sv.), þótti mjer betur fara að orða till. eins og farið er fram á á þgskj. 171. Menn mega ekki láta það villa sig, að áður er komið fram frv. um stofnun hjónabands; það lýtur að eins að hjónavígslunni.
Jeg skal nú skýra fyrir mönnum, hvað felst í till. ásamt brtt. á þgskj. 171. Aðallega er hjer um tvö aðalatriði að ræða, sem sje stofnun og slit hjónabands; og í annan stað afstöðu foreldra og barna.
Fyrra atriðið má greina í nokkur undiratriði.
1. felur það í sjer athafnir, sem samkvæmt gildandi lögum gerir manni það að skyldu að ganga að eiga konu eða greiða henni bætur ella. Reglurnar um það eru mjög úreltar og óviðeigandi. Í fyrri daga og fram á 18. öld var mönnum í slíkum málum gert að greiða rjett og ráðspjöll lögráðamanni konunnar; gat þetta stundum orðið þungt gjald; dæmi eru þess, að menn hafa orðið að greiða 60 hndr. í jörðu í rjett og ráðspjöll. En þessu var breytt 1740 meðal annars þannig, að dæma mátti mann til þess að eiga konu. Til eru 2 hæstarjettardómar, sem hníga í þessa átt, og mundi vafalaust verða fyrirmynd hjer, með því að í Danmörku gilda sömu lög um þetta efni. Í nýrri löggjöf annara ríkja, t. d. Þýskalands, á þetta sjer ekki stað, heldur er stundum heimilað að dæma í skaðabætur, og sú regla mun þykja viðkunnanlegust í nokkurn veginn siðuðum þjóðfjelögum.
2. Ýmisleg atriði um stofnun hjónabands. Ákvæði gildandi laga eru að ýmsu leyti í ósamræmi við sjálf sig, t. d. reglan um mægðir og frændsemi hjónaefnanna, sem er auk þess að sumu óviðeigandi, enda hefir ýmsu í þessu efni verið breytt í nýrri löggjöf annara þjóða. Um sjálft hjónabandið hefi jeg ekki hugsað mjer að gerðar yrðu verulegar umbætur, með því að vjer höfum ný lög um fjármál hjóna frá 1900, allgóð lög, og eru þar reglur um það atriði, sem mest varðar, fjármál hjónanna, meðan þau eru saman.
3. Hjónaskilnaður. Mörgum sýnast gildandi lög og gildandi venjur um skilnað hjóna vera meir en góðu hófi gegnir íhaldssöm. Skilnaður getur farið fram bæði með dómi og úrskurði yfirvalda (leyfi). Annars skal jeg ekki fara út í að rekja skilnaðarástæðurnar, sem í raun og veru eru í hjónabandsgr. frá 1587 og margar mjög ómannúðlegar og fráleitar. En einkum fella margir sig illa við, að hjón skuli fyrst þurfa að skilja að borði og sæng, sem kallað er, lafa síðan svo, að þau fá ekki fullan skilnað fyr en eftir 3 ár, nema ríkar ástæður sjeu fyrir hendi.
Þá kem jeg að öðru aðalatriðinu, afstöðu foreldra til barna, og þá einkum afstöðu óskírgetinna barna, svo kallaðra til föður og föðurættar. Eins og nú er hefir faðir ekki foreldravald yfir óskírgetnu barni sínu nje erfðarjett eftir það; það hefir og ekki heldur erfðarjett eftir hann eða föðurfrændur. Að vísu er faðirinn framfærsluskyldur, en erfitt þykir að koma þeirri skyldu fram, ef um refjótta barnsfeður er að ræða.
Við flutningsmenn ætlumst til þess, að stjórnin taki öll þessi atriði til athugunar. Jeg endurtek það, að margt í löggjöf vorri um þetta efni er gamalt, frá 16. öld, í hjónabandsgr. 1587 og Norsku lögum 2. kap. 5. bókar, og auk þess ýmsir gamlir konungsúrskurðir og brjef. Með tillögunni er ætlast til þess, að stjórnin endurskoði öll þessi ákvæði og safni löggjöf um þessi mál saman í eina heild. Á norðurlöndum hefir nú um tíma starfað nefnd manna, skipuð færustu mönnum í þessari grein, og hefir hún samið frv. um þessi efni, sem hafa má til hliðsjónar. Slíkt hið sama er að segja um löggjöf Þjóðverja um þessi efni, sem er mjög fullkomin.
Jeg sje, að fram er komin brtt. frá háttv. þm. Mýra. (P. Þ.), á þgskj. 216, um að skjóta inn í tillöguna ákvæði um viðhald hjónabands. Jeg get ekkert sagt um, hvað felst í þessu orði, »viðhald«, og leiði minn hest frá því að tala um brtt., fyr en jeg hefi þá heyrt háttv. flutnm. (P. Þ.) gera grein fyrir henni.
Til þess að fyrirbyggja allan misskilning skal jeg taka það fram, að jeg er eigi svo ósanngjarn að ætlast til þess, að ráðherra sá, sem fer með þessi mál, geti annað sjálfur og skrifstofa hans undirbúningi væntanlegra frv. Við teljum sjálfsagt, að stjórnarráðið leiti sjer aðstoðar í þessu efni, að því leyti sem nauðsyn þykir, svo framarlega sem stjórnarráðinu finst á annað borð rjett að verða við tillögunni.