23.08.1917
Neðri deild: 41. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2099 í B-deild Alþingistíðinda. (2152)

110. mál, fátækralög

Frsm. (Magnús Guðmundsson):

Að eins nokkrar athugasemdir út af hinni löngu ræðu hv. flutnm. (J. B.).

Um sveitfestitímann skilst mjer að hann sje sammála nefndinni, og ætti þá ekki að þurfa að vísa málinu til stjórnarinnar út af því atriði.

Sami háttv. þm. (J. B.) sagðist ekki skilja, hvers vegna nefndin vitnaði í 61. gr. fátækralaganna í áliti sínu. Það gerði hún auðvitað til þess að sýna, að það væri ekki rjett, sem hann (J. B.) hjelt fram við fyrri umr. þessa máls, sem sje, að lögin gerðu engan greinarmun á þurfalingum. Annars vegar ræðir um það, hvað eingöngu beri að telja sveitarstyrk, og hins vegar, hvað liggi við þrjósku af hendi þurfamanna, alveg eins og nál. gerir grein fyrir.

Hv. þm. (J. B.) viðurkendi, að örðugt væri að gera greinarmun á þurfamönnum eftir því, hvers vegna þeir hafa orðið þurfandi, og er hann þar samdóma nefndinni. Nú er það öllum kunnugt, og gæti jeg nefnt mörg dæmi þess, að þeir menn, sem verða þurfandi af óviðráðanlegum atvikum, fá bætt tjón sitt með samskotum einstakra manna. Þetta miðar til þess að draga úr þeim agnúum, sem háttv. flm. (J. B.) kvartar yfir.

Um rjettindi þurfamanna er það að segja, að það hefir löngum þótt óviðfeldið, að þeir menn hefðu nokkuð að segja um málefni sveitanna, sem yfir engu hafa að ráða; menn geta ekki sætt sig við það, að slíkir menn sjeu ráðsmenn yfir annara manna eigum, sem engu eiga yfir að ráða sjálfir; menn eru nú einu sinni svo skapi farnir, að vilja helst sjálfir ráða sínu. Þetta er ein aðalástæðan fyrir því, að þurfamönnum eru ekki heimiluð afskifti af sveitarstjórn.

Um þurfamannaflutninginn þarf ekki að deila. Hv. 1. þm. Reykv. (J. B.) hjelt, að þurfamönnum liði oft illa á skipum, t. d. konum, sem fluttar eru burt með börnum sínum og verða sjóveikar einar síns liðs. En auðvitað fara líka oft konur með börnum sínum á skipum einar síns liðs án þess að vera á sveit, og auðvitað geta þær konur engu síður orðið sjóveikar, svo að þetta er ekkert eins dæmi. Og auðvitað eru allir þurfamenn látnir hafa peninga til ferðanna eftir þörfum. Enn fremur hjelt sami háttv. þm. (J. B.), að þurfamenn væru oft ekki fluttir eins beint eða jafnstutta leið og hægt væri; jeg þekki nú ekki dæmi þess, en ef svo er, þá eiga fátækralögin enga sök á því, með því að í upphafi 73. gr. þeirra er svo mælt fyrir, að þurfamenn skuli flytja beina leið. Vegna þessa atriðis þarf því enga endurskoðun.

Þá mintist hv. sami þm. (J. B.) á 66. gr. fátækralaganna, og lýstu orð hans mjög miklum misskilningi. Hann virtist halda það, að ef ekki væri hægt að fá rjettar þær skýrslur, er þar ræðir um, á hálfum mánuði frá því, að styrkveitingin fór fram, þá mundi sveitarstyrkurinn vera tapaður þeirri sveit, sem veitti hann. Mjer er alveg dulið, hvaðan hv. þm. (J. B.) hefir þessa visku. Framkvæmdin á greininni er alveg andstæð þessari kenningu hans; allir úrskurðir hafa einmitt fallið í öfuga átt.

Hinn hv. þm. (J. B.) drap á það, að komið gæti fyrir, að kona fjarverandi manns þyrfti styrk, en gæti ekki sagt til um sveit hans. Svör hennar geta verið á tvennan hátt. Í fyrsta lagi getur hún sagt, að hún viti ekkert um sveit manns síns, og er það þá fært í skýrsluna, sbr. 64. gr. fátækralaganna, sem í því tilfelli gerir ráð fyrir því, að sveitarstjórnin bæti úr þessu svo fljótt, sem unt er, og á þann hátt, sem hentugast er. Í annan stað getur komið fyrir, að konan segi rangt til um sveitfesti mannsins. En það gerir þá ekki heldur neitt til; sú sveit, er styrkinn veitti, missir engin rjettindi fyrir því. Mig furðar á því, að nokkrum þingmanni skuli geta komið til hugar, að nokkur löggjöf sje svo ósanngjörn, að sveit missi styrk, sem hún hefir lagt konu ósveitlægs fjarverandi manns, af því, að skýrslur þurfandans eru ekki rjettar. En með því að hjer er um misskilning að ræða, þá er líka fallin burt ástæðan fyrir því að endurskoða þetta atriði.

Jeg viðhafði ekki þau orð, að hæstv. forsætisráðherra mundi vera mótfallinn endurskoðun laganna, vegna þess, að hann hefði átt þátt í samningu þeirra, heldur taldi jeg, að honum mundi persónulega ekki vera ljúft að breyta þeim. Að sjálfsögðu skiftir það engu, hve gömul lög eru; breytingar á þeim fara auðvitað eftir því, hve góð þau reynast, enda hefir þegar verið breytt sumum atriðum fátækralaganna. En hins vegar er nú framkvæmd þessara laga komin í svo fast horf, að miður á við að grauta þeim.

Mjer kemur það mjög óvænt, að hv. þm. Borgf. (P. O.), sem skrifað hefir undir nál. með fyrirvara, snýst nú alveg öfugur við og vill láta afgreiða málið til stjórnarinnar.