11.08.1917
Efri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2108 í B-deild Alþingistíðinda. (2164)
137. mál, siglingafáni fyrir Ísland
Eggert Pálsson:
Mjer finst ekki ástæða til, að haldnar sjeu langar umr. á þessu stigi málsins, en vil leggja það til, að till. verði vísað til lausanefndar þeirrar, er kosin var til þess að íhuga frv. um fullkominn íslenskan siglingafána, og umr. sje frestað.