24.08.1917
Efri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2109 í B-deild Alþingistíðinda. (2168)

137. mál, siglingafáni fyrir Ísland

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg vil leyfa mjer að lýsa yfir því, að ráðuneytið er fyllilega samdóma þeim háttv. nefndum í báðum deildum, sem um mál þetta hafa fjallað, um það, að þingviljinn komi jafnótvírætt í ljós í till. þessari eins og hann hefði gert í frumvarpi.

Jeg lýsti yfir því í háttv. Nd., að stjórnin mundi leggja alla alúð við málið, eins þótt þessi leið hafi verið valin, og vil jeg endurtaka þá yfirlýsingu mína hjer í þessari háttv. deild.