09.08.1917
Neðri deild: 29. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2116 í B-deild Alþingistíðinda. (2182)

141. mál, ásetningur búpenings

Sveinn Ólafsson:

Það ber auðvitað að líta á þessa þingsályktunartillögu sem sjerstaka dýrtíðarráðstöfun, og eftir því, sem hv. frsm. (J. J.) tók fram, er henni ætlað að nægja ásamt forðagæslulögunum.

Jeg get nú ekki verið sammála hv. frsm. (J. J.) um það, að það hafi mikla þýðingu, þótt landsstjórnin láti til sín heyra úti um land. Við vitum, að þar eru dýrtíðarráðstafanir aðallega í höndum hreppsnefndanna, og jeg skil ekki í, að þær gangist mikið upp við nýja áskorun frá stjórnarráðinu. Landsstjórnin snýr sjer varla beint til þeirra, heldur sýslumannanna, og vænti jeg þess, að árangurinn verði svipaður og vant er, að eins fáar brjefdúfur milli stjórnarvalda þessara, og útkoman núll. Jeg álít þetta því eintómt pappírskák.

Háttv. frsm. (J. J.) sagði, að forðagæslulögin væru ekki enn alstaðar gengin í gildi. Það er mjer ókunnugt um, og sje það rjett, er vissulega kominn tími til að líta þar eftir fyrir framkvæmdarvaldið, ef annars á að láta slíka lagasmíð standa, sem jeg þó hefi enga trú á að verði að liði.

Mjer skildist á háttv. frsm. (J. J.), að landbúnaðarnefndinni hefði ekki unnist tími til að semja frv. til heimildarlaga, og hefði því bjargað málinu við með þessari aðferð. Sem sagt, jeg hefi ekki trú á aðferð þeirri og ætla því að greiða atkv. gegn till., því að jeg álít hana þýðingarlausa.