09.08.1917
Neðri deild: 29. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2117 í B-deild Alþingistíðinda. (2183)

141. mál, ásetningur búpenings

Frsm. (Jón Jónsson):

Mjer þykir undarlegt að heyra, að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) ætlar að greiða atkv. gegn till., því að hún er þó a. m. k. saklaus. Hv. þm. (Sv. Ó.) sagði oftar en einu sinni, að till. hefði enga þýðingu, en jeg vil nú benda á það, sem við allir, er kunnugir erum til sveita, þekkjum, að í flestum sveitum eru til óprútnir menn, sem hafa ekki nóg handa skepnum sínum og taka þó ef til vill á fóður, í von um, að alt slarkist einhvern veginn. Það er ekki víst, að þeir taki tillit til áminninga frá nágrönnum sínum, en þeir taka ef til vill meira tillit til þess, ef margir líta sömu augum á málið á almennum fundi. Jeg vil biðja háttv. þm. (Sv. Ó.) að athuga þetta, að meiri líkindi eru til, að það hafi áhrif, ef margir leggja orð í belg. Þetta er það, sem við í nefndinni höfðum fyrir augum. Nefndin leit svo á, að ekki þyrfti heimildarlög, af því að forðagæslulögin eru komin fyrir; þetta er einmitt gert til þess að fá menn til að fylgja forðagæslulögunum. Jeg held því, að ummæli hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) um till. sjeu röng. Það er áreiðanlega besta ráðið að koma bændum til að ræða málið í bróðerni, því að þá er jeg viss um, að þeir fara eftir því, sem skynsamir menn leggja til.