09.08.1917
Neðri deild: 29. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2120 í B-deild Alþingistíðinda. (2186)

141. mál, ásetningur búpenings

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Ef jeg hefi skilið hv. flutningsmann tillögunnar (J. J.) rjett, þá ber hann fram tillöguna í þeim tilgangi, að forðagæslulögin komi þá betur að liði, en ekki til þess, að hún komi í staðinn fyrir þau.

Jeg skal ekki neita því, að verði tillagan samþykt, þá verði hún ný hvöt til framkvæmda í fóðurbirgðamálinu; ekki ólíklegt, að hún verði til þess, að menn komi fremur á samþyktum í sveitunum. Slíkar samþyktir eru sumstaðar komnar á, og að því, er jeg best veit, hafa þær komið að talsverðu gagni.

Mjer sýnist það því vera talsverður ábyrgðarhluti að reyna að bregða fæti fyrir tillöguna, því að ekki er þó hægt að segja annað en að tillagan sje að minsta kosti meinlaus, en getur ef til vill komið að gagni.

Mjer finst einmitt, að þessi till. nálgist hugsjón háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), og því átti jeg síst von á, að hann tæki svona í málið, enda hafði hann ekkert á móti tillögunni í sjálfu sjer, en óttaðist einungis, að hún kæmi ekki að haldi.

Jeg skal taka það fram, að jeg sje ekki, að landsstjórnin gæti skorast undan að skrifa þessi brjef til sveitarstjórnanna. Jafnvel þótt hún áliti, að það væri ekki annað en skriffinska, þá hygg jeg, að mörg skriffinska, sem nú er talin í fullu gildi, sje ónauðsynlegri, því að altaf getur þó verið, að einhversstaðar komi tillagan að liði, en slíkt verður tæplega sagt um sum atriði núgildandi skriffinsku.