13.08.1917
Neðri deild: 32. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2127 í B-deild Alþingistíðinda. (2199)

154. mál, fóðurbætiskaup

Benedikt Sveinsson:

Jeg hefi fengið þær upplýsingar frá kunnugum manni, að í Eyjafirði liggi 18000 tunnur af óskemdri síld frá því í fyrra, sem er vel pækluð, en mun þó ekki ætluð til útflutnings. Þessi síld er eign Breta, og hafa þeir selt hana til skepnufóðurs bændum, til verslana og til lýsisverksmiðja. Verðið kvað hafa verið til þessa 18—20 kr. fyrir tunnu. Það væri athugunarefni fyrir stjórnina, hvort ekki væri hagkvæmt að sæta kaupum á þessari síld, og yrði þá að gera það áður en henni verður ráðstafað á annan hátt.